Varnargarðar reistir meðfram Thames-ánni Óli Tynes skrifar 24. júlí 2007 11:43
Breskar björgunarsveitir hamast nú við að byggja varnargarða neðarlega meðfram Thamesá þar sem búist er við miklum flóðum á næstu dögum. Hundruð þúsunda manna hafa enn ekki neitt hreint vatn til drykkjar, en verið er að koma rafmagni á á nýjan leik. Flóðin í Thamesá hafa náð hámarki í Oxford og gerðist það án teljandi tjóns. Neðar við ána eru björgunarsveitir hinsvegar að hamast við að byggja varnargarða þar sem lágt liggur, þar sem búist er bið flóðbylgjum niðureftir ánni á næstu dögum. Í Vestur-Englandi eru nú flóðin smám saman að sjatna og verið er að koma rafmagni á aftur. Enn eru þó tugþúsundir heimila án rafmagns og 350 þúsund manns hafa ekkert ferskvatn. Tankbílar með hreint vatn streyma nú til flóðasvæðanna. Bílar og hús eru enn á kafi og allar samgöngur á landi hafa stórlega truflast. Þyrlur eru í stöðugum ferðum auk þess sem bátar eru notaðir til þess að ferja bæði fólk og vistir. Þetta eru verstu flóð sem orðið hafa í Bretlandi í sextíu ár. Orsökin er gríðarlegar rigningar og sem dæmi má nefna að á föstudaginn mældist úrkoman 120 millimetrar á nokkrum stöðum. Og útlitið er satt að segja ekki gott. Spáð er áframhaldandi úrkomu á næstu dögum.
Erlent Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira