Nígerísk stjórnvöld höfða mál gegn Pfizer Jónas Haraldsson skrifar 25. júlí 2007 13:23 Nígerískur faðir bendir á mynd af syni sínum sem að fékk tilraunalyfið og varð fyrir heilaskaða. MYND/AP
Nígerísk stjórnvöld hafa lagt fram formlega kæru gegn bandaríska lyfjarisanum Pfizer vegna lyfjaprófanna sem fram fóru í ríkinu Kanó í norðurhluta Nígeríu árið 1996. Nígeríska stjórnin var þegar búin að höfða einkamál gegn Pfizer og krefst þar 6,5 milljarða dollara, sem samsvarar tæplega 390 milljörðum íslenskra króna, í bóta. Ríkisstjórnin í Kanó hefur einnig höfðað einkamál og krefst þar 2,2 milljarða dollara, sem samsvarar rúmlega 131 milljarði íslenskra króna. Þá hefur hún einnig lagt fram formlega kæru í málinu. Árið 1996 hélt Pfizer lyfjaprófanir á sýklalyfinu trovafloxacin og gáfu hundruðum barna lyfið. Mörg þeirra dóu vegna aukaverkanna og sum hlutu skaða fyrir lífstíð. Foreldrar barnanna segja að þeim hafi verið gefið lyfið án þess að vita af því. Þegar hafa fjórir einstaklingar sem lentu í lyfjaprófununum reynt að leita réttar síns í Bandaríkjunum en á endanum var málunum vísað frá. Nígerísk stjórnvöld tóku því málin í sínar hendur og lögðu fram kærur og einkamál á þessu ári í Nígeríu. Þau segja jafnframt að Pfizer hafi aldrei fengið samþykki sitt fyrir því að halda þessar lyfjaprófanir.
Erlent Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira