Fjölmargir Norðurlandabúar unnu fyrir Stasi Óli Tynes skrifar 9. ágúst 2007 11:01 Höfuðstöðvar Stasi.
Sænski rannsóknarblaðamaðurinn Björn Cederberg segir að fjölmargir Norðurlandabúar hafi unnið fyrir Stasi, hina illræmdu leyniþjónustu Austur-Þýskalands. Cederberg hefur verið að rannsaka skjalasafn leyniþjónustunnar undanfarin fimm ár. Íslensk stjórnvöld létu á sínum tíma rannsaka hugsanleg tengsl nokkurra Íslendinga við Stasi. Cederberg hefur ekki enn nafngreint þá Norðurlandabúa sem hann telur hafa unnið fyrir Austur-Þjóðverja. Cederberg var einkum að leita að Svíum í skjalasafninu og hann telur að sænskir njósnarar og uppljóstrarar hafi verið yfir fimmtíu talsins. Cederberg telur einnig að tugir Norðmanna og Dana hafi verið á mála hjá Stasi. Stasi hafði á sínum tíma óteljandi njósnara og uppljóstrara á sínum vegum. Austur-Þjóðverjar hvoru hvattir til þess að njósna hver um annan. Börn voru hvött til að ljóstra upp um foreldra sína. Sú saga er sögð að þegar Stasi var leyst upp eftir fall kommúnismans hafi Vestur-Þjóðverji spurt austur-þýskan vin sinn hvað allir Stasi njósnararnir færu nú að gera. Svarið var að auðvitað yrðu þeir allir leigubílstjórar. "Af hverju auðvitað ?" "Jú, það liggur beint við. Þú bara segir þeim hvað þú heitir og þá vita þeir hvar þú átt heima."
Erlent Mest lesið Útsýnið úr útsýnisíbúðinni verður að engu Innlent Grunuð um að setja milljónir af opinberu fé inn á veðmálasíður Innlent Hæstiréttur stöðvar ekki dómsuppsögu í máli Trumps Erlent Náðu að loka á mann sem sveiflaði hníf inn um hurð Innlent Stóru eldarnir enn hömlulausir Erlent Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Erlent Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Erlent „Kæmi slíkt upp í Reykjavík yrði gengið fljótt til verks“ Innlent Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Erlent Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi Erlent Fleiri fréttir Egede biðlar til Grænlendinga um yfirvegun og samstöðu Óttast að stóriðja spilli besta stjörnuskoðunarstað jarðar Stóru eldarnir enn hömlulausir Hæstiréttur stöðvar ekki dómsuppsögu í máli Trumps Trúir ekki að Trump muni beita hervaldi Íslendingar þurfi að huga að forvörnum með auknum gróðri og skógi Fimm forsetar viðstaddir útför Carters Myndasyrpa: Að minnsta kosti tvö þúsund hús brunnin í Los Angeles Spjallaði við hæstaréttardómara rétt fyrir áfrýjun Fyrrverandi fjármálaráðherra Svíþjóðar látinn Skotbardagi við forsetahöll Tjad Líkurnar á að öfgahægrimaður verði kanslari fara vaxandi Þjóðaröryggisráðgjafi Trumps: „Þetta snýst um sjaldgæfa málma, þetta snýst um auðlindir“ „Skóli barnanna er farinn, flestar verslanir og ég veit ekki hversu mörg hús“ Eigandi vefsíðunnar í Pelicot-málinu handtekinn í Frakklandi Banna fjölmiðlum að nota full nöfn og myndir af hermönnum Eldar brenna stjórnlaust um alla Los Angeles Forstjóri OpenAI sakaður um áralangt ofbeldi gegn systur sinni Mette boðar flokksformenn á neyðarfund vegna Grænlands Stjórnlausum eldum fjölgar í LA ESB sektað fyrir að brjóta eigin persónuverndarlög Af hverju langar Trump í Grænland? Leita nýrra leiða til að sækja sýni til Mars Kyrrsetja skuggaskipið vegna slæms ástands Ætlar að hitta kónginn í dag Belgar varaðir við því að borða jólatrén Hætta staðreyndavöktun á Facebook og Instagram Eldar loga í LA og neyðarástandi lýst yfir Útilokar ekki að beita hervaldi til að ná Grænlandi Ummæli um vanþakklæti Afríkubúa valda reiði Sjá meira