Þáttastjóri gladdist yfir árásinni á Bandaríkin Óli Tynes skrifar 13. september 2007 16:20 Jens Blauenfeldt; gladdist yfir hryðjuverkaárás.
Þáttastjórnandi við danska ríkissjónvarpið hefur valdið nokkru uppnámi með því að viðurkenna að hann hefði glaðst yfir hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin. Ganrýnendur ríkissjónvarpsins segja að þetta sé enn eitt dæmið um að þar ráði rauði liturinn ríkjum. Fleiri starfsmenn sjónvarpsins þykja hafa sýnt sinn rétta lit á undanförnum mánuðum. Jens Blauenfeldt stjórnaði í gær þætti þar sem þess var minnst að sex ár voru liðin frá hryðjuverkaárásinni. Hann sagði þar meðal annars; "Það er dálítið vandræðalegt að viðurkenna það, en ég hugsaði með mér; Hey þetta eru ameríkanarnir. Nú fá þeir skell. Þeir hafa virkilega gott af því." Blauenfeldt hefur fengið áminningu vegna þessara ummæla, og beðið afsökunar á þeim. Gagnrýnendur danska ríkissjónvarpsins taka þó lítið mark á þeirri afsökunarbeiðni. Þeir minna á að í síðustu viku varð sjálfur sjónvarpsstjórinn að biðjast afsökunar á því að hann mætti á rokktónleika í bol frá Ungdómshúsinu umdeilda. Milljónatjón var unnið í óeirðum eftir að húsið var rifið í sumar. Það er einnig minnt á að 3. janúar síðastliðinn sagði þáttastjórnandinn Peter Kjær að hann vonaði að Fidel Castro yrði eilífur.
Erlent Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira