Tímabilið hugsanlega búið hjá Tom Brady 8. september 2008 10:25 Tom Brady er hér hjálpað af velli í gær. Nordic Photos / Getty Images
Svo gæti farið að Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots, verði frá það sem eftir lifir tímabilsins í NFL-deildinni. Hann meiddist illa á hné í sigri Patriots á Kansas City Chiefs í gær, 17-10. Brady féll til jarðar eftir að hann var tæklaður af Bernard Pollard og mátti haltra af velli. Óttast er að hann hafi slitið krossbönd í hné en hann á eftir að fara í myndatöku til að fá það staðfest. New England vann alla sextán leiki sína á tímabilinu fyrir úrslitakeppnina í fyrra en tapaði í úrslitunum, Super Bowl, fyrir New York Giants. Bill Belichick vildi ekkert tjá sig um möguleikann á því að Brady myndi spila aftur á tímabilinu en sagði að hann hefði greinilega verið mjög þjáður. Brady var kjörinn verðmætasti leikmaður NFL-deildarinnar í fyrra og gaf 50 sendingar fyrir snertimarki sem er met í deildinni. Það yrði því vitanlega mikið áfall fyrir Patriots að missa hann í svo alvarleg meiðsli.
Erlendar Mest lesið Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Enski boltinn „Karfan er æði en lífið er skítt“ Körfubolti „Eitthvað annað og stærra en ég hef nokkurn tímann upplifað“ Fótbolti Umdeildur arnatemjari rekinn fyrir að birta typpamyndir Fótbolti Ætlar að hella í sig þegar Stephen Curry hættir Körfubolti Karius mættur í þýsku B-deildina Fótbolti Nökkvi í höfn í Rotterdam og getur aftur labbað á kaffihús Fótbolti Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd Fótbolti Danir skoruðu 47 mörk í fyrsta leik sínum á HM Handbolti Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Enski boltinn Fleiri fréttir Svona verður Ísland heimsmeistari Nökkvi í höfn í Rotterdam og getur aftur labbað á kaffihús „Karfan er æði en lífið er skítt“ „Eitthvað annað og stærra en ég hef nokkurn tímann upplifað“ Littler skildi ekkert hvað Sir Alex sagði Dagskráin í dag: Akureyringar mæta á Krókinn, þýski boltinn og Körfuboltakvöld Ætlar að hella í sig þegar Stephen Curry hættir Karius mættur í þýsku B-deildina Þrettánda jafnteflið hjá Juventus Ásdís Karen orðin samherji Hildar í Madríd „Fannst við eiga vinna leikinn” Njarðvík og Stjarnan með góða útisigra „Hefur tekið styttri tíma en ég bjóst við“ Danir skoruðu 47 mörk í fyrsta leik sínum á HM Malen mættur til Villa Hin efnilega Arnfríður Auður í raðir Vals Jafnt í toppslagnum í Skírisskógi Ótrúleg endurkoma heimamanna James bjargaði heimaliðinu Ítalía og Frakkland byrja HM af krafti Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 88-82 | Nýir þjálfarar fögnuðu sigri í háspennuleik Uppgjörið: Haukar - Valur 87-67 | Engin vandræði á toppliðinu Fyrrum fyrirliði og þjálfari Man City látinn Segja að Zubimendi fari til Arsenal í sumar Hvetur fólk til að fylgjast með Viggó á HM Arteta um ógeðslegu skilaboðin: „Verður að draga línu í sandinn“ Freyr gaf KSÍ tveggja sólarhringa frest: „Ég stóð bara við mín orð“ Kári segir Atla geta orðið „unplayable“ Handtekinn fyrir að ofsækja Caitlin Clark Sven-Göran skildi eftir sig skuldir upp á einn og hálfan milljarð Sjá meira