Ég er ekki svona ömurlegur sjálfur 24. október 2009 04:00 Sveinn Torfi og Ástríður (Ilmur Kristjánsdóttir). Stöð 2
Rúnar Freyr Gíslason er í tveimur áberandi hlutverkum í íslenskum sjónvarpsþáttum þessa dagana. „Nei, nei, ég er ekki svona ömurlegur sjálfur,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, sem leikur tvo leiðindagaura í sjónvarpinu um þessar mundir. Annars vegar er það Sveinn Torfi, kærasti Ástríðar í samnefndum þáttum á Stöð 2, og hins vegar pólitíkusinn Orri, eiginmaður rannsóknarlögreglukonunnar Ingu í Hamrinum í Ríkissjónvarpinu. Af þessum tveimur kann Rúnar mun betur við pólitíkusinn Orra í Hamrinum. „Ég sé hann nú ekki sem einhvern fávita, heldur er þetta bara ungur maður á framabraut. Það hefur ekkert sannast á hann. Þótt það sé kannski stirt á milli þeirra Ingu er það nú bara hlutur sem vill gerast þegar það er brjálað að gera hjá báðum í samböndum. Týpan er skírskotun í unga stjórnmálamenn en ég nefni engin nöfn.“Rúnar Freyr Gíslason neitar því staðfastlega að vera sama fíflið og Sveinn Torfi.Fréttablaðið/StefánRúnar samþykkir þó að Sveinn Torfi í Ástríði sé glataður gaur. „Jú, hann er óttalegt fífl. Eiginlega versta tegundin: væmið fífl! Maður sem segist vera „vinner“ er náttúrlega langt í frá að vera „vinner“. En hann hefur alla mína samúð. Það er svona gaur í okkur öllum, bara spurning hvað hann er ríkjandi. Hverjir þola höfnun? Ég þekki nokkra svona gaura. Þeir fúnkera vel og koma sterkir inn við fyrstu kynni. En þegar hlutirnir ganga ekki eins og þeir vilja þá breytast þeir.“ Rúnar segir Svein Torfa eiga eftir að ganga í gegnum enn frekara helvíti í þeim tveimur þáttum sem eftir eru af seríunni. „Þessir þættir hafa fengið góð viðbrögð og það hefur komið til tals að búa til aðra seríu. Ég veit samt ekki hvort Sveinn Torfi verði mikið með í henni.“ Rúnar starfar þennan vetur í Borgarleikhúsinu „í láni“ frá Þjóðleikhúsinu. Hann sést næst í Fjölskyldunni, sem verður frumsýnd 30. október. Þar á eftir leikur hann í Faust og Gauragangi. En ekkert meira sjónvarp? „Nei, ekki eins og er. En maður vonar bara að þetta haldi áfram að vera svona blómlegt. Sunnudagskvöldin eru allt í einu orðin uppáhaldskvöldin manns."
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Lífið Fleiri fréttir „Það er alveg hægt að vinna rifrildið en þá tapar sambandið“ Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Fagnaði 35 árum í sólinni Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn „Allir vonuðu að þetta yrði stelpa“ Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Selur slapp úr hvalskjafti Komo keppir á stærstu götubitakeppni í heimi Verslunarhjón selja glæsivillu í 108 Okkar eigið Ísland: Skelltu sér í slímuga laug Eitt stærsta bílabíó landsins fer fram um helgina „Það spurði þig enginn“ Mætt aftur til vinnu Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Fagurt einbýli í hjarta Vesturbæjar Ljúffengar vöfflur í nestisboxið Réði ekki við sig þegar hann hitti Lopez Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Leyfir börnunum að sofa uppi í rúmi Smekklegasta fólk landsins skálaði í kaffi Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Klippt út af myndinni Ein litríkasta íbúð landsins til sölu Gæsun Maríu Thelmu tók óvænta U-beygju Gáfu dótturinni þrjú nöfn Stjörnulífið: Brúðkaupsafmæli á hlaupum og lokatónleikar Laufeyjar Var Díana prinsessa myrt? Sjá meira