Straumur og aðrir kröfuhafar taka yfir West Ham 8. júní 2009 08:33 Björgólfur Guðmundsson situr hér í heiðursstúkunni á Upton Park.
CB Holding, sem er að meirihluta í eigu Straums-Burðaráss, hefur í dag tekið yfir enska úrvalsdeildarfélagið West Ham United sem var í eigu Björgólfs Guðmundssonar. Björgólfur og Ásgeir Friðgeirsson hætta í stjórn félagsins. Þetta þýðir að Hansa Holding, félag Björgólfs sem átti West Ham, fer ekki í gjadlþrot. Andrew Bernhardt, einn af framkvæmdastjórum Straums, tekur við sem stjórnarformaður. Þetta kemur fram í tilkynningu í morgun. Björgólfur Guðmundsson segir í tilkynningunni að hann verði stuðningsmaður West Ham til æviloka. „Ég vil þakka öllum á Upton Park fyrir ógleymanleg ár. Ég óska nýrri stjórn og öllum félagsins góðu gengi í framtíðinni. Ég verð stuðningsmaður West Ham til æviloka og vonast til að koma sem oftast á Upton Park." Björgólfur keypti félagið seint á árinu 2006. Eftir bankahrunið síðasta haust hefur legið ljóst fyrir að hann næði ekki að halda félaginu. West Ham hafnaði í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðu tímabili.
Mest lesið U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Viðskipti innlent Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Neytendur Fleiri fréttir Ben kveður Jerry Nálgast samkomulag um TikTok Breytingar hjá Microsoft koma fyrirtækinu hjá sektum Ellison klórar í hælana á Musk Danski lyfjarisinn að baki Ozempic segir upp þúsundum manna Útvaldi sonurinn tryggir sér stjórn Murdoch-veldisins Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Vara við „Lafufu“ Framkvæmdastjóri Nestlé látinn fara í kjölfar ástarsambands Frakkar þurfi mögulega að leita aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Risinn sem var of stór til að falla er fallinn Facebook gagnrýnt fyrir að leyfa gervigreind að reyna við börn Vilja ekkert með áfengi nágranna sinna hafa Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Stærsti olíu- og gasfundur olíurisa í 25 ár Tíu prósenta tollur á færeyskar vörur Leist ekki á hagtölur og rak yfirmann stofnunarinnar Sjá meira