Myrt ásamt manni sínum á leið heim úr afmælisveislu 3. júlí 2010 02:00 Chavez sést hér í miðið ásamt félögum í glæpagengi, en þeir voru handteknir nýverið. Nordiphotos/AFP
Forsprakki eiturlyfjahrings í Mexíkó hefur lýst því verki á hendur sér að fyrirskipa morð á bandarískum ræðismanni, Lesley Enriquez, og eiginmanni hennar sökum þess að hún hafi veitt andstæðingum hans vegabréf í landamæraborginni Ciudad Juarez. Maðurinn heitir Jesus Ernesto Chavez og var handtekinn í síðustu viku. Er hann leiðtogi hóps leynimorðingja sem vinna fyrir gengi, samkvæmt fíkniefnadeild lögreglunnar í landinu. Lögreglan staðfestir orð Chavez um að hafa fyrirskipað morðið á Enriquez og eiginmanni hennar, sem framið var 13. mars. Enriquez var gengin fjóra mánuði með barn þeirra hjóna, en þau voru bæði skotin til bana í bifreið sinni á leið heim úr afmælisveislu. Sjö mánaða gömul dóttir þeirra fannst grátandi í aftursætinu í kjölfarið. Jorge Alberto Salcido, eiginmaður annars bandarísks ræðismanns, var einnig skotinn til bana í bíl sínum eftir að hann yfirgaf sömu afmælisveislu. Átök samtaka Chavez við aðra fíkniefnahringi í borginni hafa gert Ciudad Juarez að einni hættulegustu borg í heimi. Rúmlega 2.600 manns voru myrtir á síðasta ári, en íbúar borgarinnar eru 1,3 milljónir. - sv
Erlent Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Sjá meira