Sigfús Páll Sigfússon aftur í Fram Hjalti Þór Hreinsson skrifar 29. maí 2010 19:00 Sigfús Páll. Fréttablaðið/Daníel
Sigfús Páll Sigfússon er genginn í raðir Fram á nýjan leik. Hann kemur til liðsins frá Val. Hann gerði tveggja ára samning við Fram en hann var samningslaus hjá Val. Fram sendi frá sér fréttatilkynningu vegna þessa í dag. „ Sigfús þarf ekki að kynna fyrir Frömurum. Leikmaðurinn byrjaði ungur að árum að vekja athygli í Safamýrinni og Einar nokkur Jónsson, aðalþjálfari m.fl. kvenna og aðstoðarþjálfari m.fl. karla, tók drenginn snemma á séræfingar. Sigfús lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Fram undir stjórn Heimis Ríkharðssonar leiktíðina 2003-2004, þá aðeins 17 ára gamall." "Haustið 2005 tók Guðmundur Þórður Guðmundsson við ungu liði Fram og lagði hann mikið traust á herðar Sigfúsar sem varð aðal leikstjórnandi liðsins tímabilið 2005-2006. Sigfús varð Íslandsmeistari með Fram á sömu leiktíð og var valinn bæði efnilegasti og besti sóknarmaður deildarinnar á árlegu lokahófi HSÍ. Sem leikmaður Fram var Sigfús valinn í A-landsliðið og hefur hann leikið tvo landsleiki fyrir Íslands hönd." "Undanfarin ár hefur Sigfús verið meðal fremstu leikstjórnenda landsins. Sigfús er gríðarlega útsjónarsamur leikmaður og fáir halda jafn góðu „flæði" í sóknarleik og Sigfús. Sigfús hefur fiskað hvað flest vítaköst og brottvísanir í deildinni undanfarin ár." "Handknattleiksdeild Fram býður Sigfús hjartanlega velkominn heim og hlakkar til að sjá til kappans á fjölum Safamýrarinnar í blárri treyju á komandi vetri."
Olís-deild kvenna Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Fleiri fréttir Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Sjá meira