Gylfi: Verðum að nýta okkar færi Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Edinborg skrifar 11. október 2010 09:00 Gylfi Þór Sigurðsson. Mynd/Valli
Gylfi Þór Sigurðsson reiknar með því að íslenska U-21 landsliðið muni fá sín marktækifæri í leiknum gegn Skotlandi í kvöld. Þau verði liðið að nýta. „Við búumst við því að þeir verði með tvo sóknarmenn enda eru þeir á heimavelli og þurfa að skora," sagði Gylfi í samtali við Vísi. „En þá losnar líka um pláss á miðjunni. Við ættum að geta nýtt okkur það, komið boltanum út á kantinn og sótt þar hratt fram. Ef þeir ætla að sækja á okkur fáum við alltaf einhver tækifæri til að skora. Þessi tækifæri verðum við að nýta." Fyrri leik liðanna á fimmtudaginn lauk með 2-1 sigri Íslands á Laugardalsvellinum. Það lið sem sigrar í rimmunni kemst í úrslitakeppni EM í Danmörku á næsta ári. „Stemningin í liðinu eftir síðasta leik er fín. Við erum einbeittir og ákveðnir í því að komast áfram. Við höfum farið vel yfir leikinn og nýtt tímann til undirbúnings vel. Við höfum alltaf lagt áherslu á það að hugsa bara um næsta leik og það gerum við líka nú." Skotar komust yfir í leiknum gegn Íslandi á fimmtudaginn en Gylfi segir að það hafi ekki dregið kjarkinn úr leikmönnum. „Alls ekki. Við sýndum styrk með því að koma til baka og vinna leikinn. Úrslitin þýða að ef við höldum hreinu nú þá komust við áfram. En við munum samt reyna að sækja á þá enda vitum við að þeir gefa alltaf færi á sér á heimavelli."
Íslenski boltinn Mest lesið Stól kastað í höfuð markmanns Aberdeen Fótbolti „Æfingu morgundagsins er aflýst“ Enski boltinn Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Handbolti „Leikmenn fá frípassa til þess að meiða í pirringi“ Fótbolti Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock Handbolti Engin Meistaradeild hjá Hákoni Arnari Fótbolti Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Handbolti „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Uppgjörið: Fram - Þór/KA 1-3 | Tvö mörk frá Söndru Maríu í sigri Þór/KA Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Þróttur mætir bikarmeisturunum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Bikarævintýri Fram heldur áfram Markamaskínan Tokic og margfaldur Íslandsmeistari í 5. deildina „Elska að horfa á FH“ Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Bestu mörkin: Uppgjör fyrstu fimm umferða Bestu deildarinnar Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára í Akraneshöllinni Afturelding lagði ÍA á Akranesi og ÍBV hefndi sín Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Þór komið áfram eftir öruggan sigur á Suðurlandi Einn besti leikmaður KR frá næsta mánuðinn hið minnsta Víðir og Reynir ekki í eina sæng Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Þróttur skoraði sex og flaug áfram Valur marði Fram í framlengingu Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Hafa notað sama byrjunarliðið í öllum leikjunum Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast