Össur: Sigurjón er „hvapholda í andliti“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. apríl 2010 20:04
Konráð Jónsson, lögfræðingur, framkvæmdi tilraun til að staðreyna hvort hægt væri að gleypa hálfan snúð í einum bita eins og Sigurjón Þ. Árnason á að hafa gert samkvæmt vitnisburði Össurar Skarphéðinssonar. Konráð komst að því að þetta væri ómögulegt og ritaði Össuri bréf í kjölfarið. Össur svaraði Konráð, gerir athugasemdir við aðferðafræði hans og segist standa við orð sín sem vitnað er til í skýrslunni. Í vitnisburðum manna fyrir rannsóknarnefnd Alþingis eru margar skrautlegar lýsingar og óhætt að skýrslan hafi farið fram úr björtustu vonum margra í þeim efnum. Í vitnisburði Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra fyrir nefndinni þar sem hann lýsir atburðarrásinni í ráðherrabústaðnum helgina örlagaríku fyrir setningu neyðarlaganna í október 2008, þegar forsvarsmenn Landsbankans reyndu að sannfæra stjórnvöld um að enn væri hægt væri að bjarga íslenska bankakerfinu með því að sameina Landsbankann og Glitni, segir Össur: „Svo var þessi fundur búinn, Sigurjón var þarna, það voru snúðar á borðunum, skornir í tvennt, stórir snúðar. Sigurjón er nú munnstór maður og mikill og þegar þeir voru farnir út og hann var einn eftir þá tók hann svona hálfan snúð, tróð honum upp í andlitið á sér og skaut undan snúðnum þessari setningu: Ég hef ekki trú á þessu, ég hef ekki trú á þessu. Þá kom svona hönd með gullúri og kippti honum út." Konráð Jónssyni, lögfræðingi, fannst þetta ótrúleg lýsing og framkvæmdi tilraun þar sem hann kannaði hvort þetta væri yfirleitt hægt. Niðurstaða Konráðs var að þetta væri ómögulegt, en hann tók tilraunina upp á myndband sem sést að hluta í myndskeiði með fréttinni. Konráð sendi Össuri Skarphéðinssyni bréf í kjölfarið með tengli á myndbandið með tilrauninni. Í bréfi sínu spyr Konráð hvort Össur standi við orð sín í ljósi niðurstöðunnar. Össur, sem er með doktorspróf í líffræði, svaraði Konráð. Hann gerði athugasemdir við aðferðafræði Konráðs og vitnaði til bókarinnar „Vísindi byggð á tilraunum" sem lengi hafi verið kennd við íslenskar menntastofnanir. Því næst rekur Össur í bréfi sínu að Sigurjón sé höfuðstærri, hlutfallslega miklu munnstærri en Konráð og auk þess hvapholda í andliti, sem geri andlit Sigurjóns teygjanlegra. Síðan segir Össur í bréfinu til Konráðs: „Svo sé ég ekki betur en þú sért rauðbirkinn og áralangar rannsóknir austan og vestan hafs hafa leitt óyggjandi í ljós að slíður vöðvafruma í munnvikjum rauðbirkinna eru miklu þykkari en á svarthöfðum og því óþjálli til teyginga," segir Össur sem kveður síðan Konráð með þessum orðum: „Ég er um það bil viss um að ég hafi aldrei sagt að hann hafi sporðrennt hálfum snúð í í einum munnbita. Hins vegar tróð hann hálfum snúðnum upp í túlann í einu. Því gleymir enginn sem séð hefur."
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira