Ekkert virðist stöðva Dortmund Stefán Árni Pálsson skrifar 19. febrúar 2011 17:03 Lucas Barrios fagnar marki sínu í dag / Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund heldur áfram sínu striki í þýsku úrvalsdeildinni og virðast ekki ætla að láta frá sér efsta sætið, en þeir unnu þægilegan sigur á FC St.Pauli 2-0 í dag. Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Hoffenheim, byrjaði á varamannabekknum í dag þegar lið hans mætti Köln í þýsku úrvalsdeildinni. Það hefur verið hlutskipti Gylfa að byrja á bekknum undanfarið þrátt fyrir virkilega góða frammistöðu. Staðan var 0-0 í hálfleik en Hoffenheim náði að komast yfir eftir þriggja mínútna leik í síðari hálfleik þegar Milivoje Novaković, leikmaður Köln, skoraði sjálfsmark. Köln náði að jafna leikinn á 65. mínútu en þar var að verki Youssef Mohamad. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli. Gylfi Þór Sigurðsson fékk aðeins að spreyt sig í nokkrar mínútur en hann kom inn á þegar 90 mínútur voru liðnar af leiknum. Eyjólfur Sverrisson, nýráðin aðstoðarþjálfari Wolfsburg, var í fyrsta skipti á hliðarlínunni í dag þegar lið hans tapaði ,2-1, fyrir Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni. Efsta liðið í deildinni Borussia Dortmund fékk St. Pauli í heimsókn en Dortmund leikur heimaleiki sína á einum erfiðasta heimavelli í Evrópu, en troðfullt er ávallt á Signal Iduna Park sem tekur um 80 þúsund manns. Lucas Barrios skoraði fyrra mark Dortmund en Ralph Gunesch skoraði síðan sjálfsmark. Borussio Dortmund sigraði leikinn 2-0 og eru enn lang efstir í þýsku úrvalsdeildinni.Úrslit dagsins í þýsku úrvalsdeildinni:Hamburger SV - Werder Bremen - 4:0SC Freiburg - Wolfsburg -2:1Hoffenheim - FC Köln - 1:1Hannover - FC Kaiserslautern - 3 :0Borussia Dortmund - FC St.Pauli - 2:0
Þýski boltinn Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Fleiri fréttir Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Sjá meira