Liðsfélagi Gylfa hjá Hoffenheim má ekki mæta á æfingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2011 20:30 Josip Simunic á bekknum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Króatíski varnarmaðurinn Josip Simunic hjá Hoffenheim hefur fengið skýr fyrirmæli frá forráðamönnum félagsins að hann megi ekki lengur mæta á æfingar liðsins. Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson spilar einmitt með þýska liðinu. Simunic er 33 ára gamall króatískur landsliðsmaður sem hefur spilað með Hoffenheim frá árinu 2009 en áður lék hann með Hertha BSC í níu ár. Hann þarf nú að æfa einn en samningur hans við félagið rennur út í júní á næsta ári. „Josip verður fyrst að ná sér hundrað prósent af vöðvatognun sinni áður en hann mætir á æfingar hjá okkur. Við töluðum líka um það að við hann að við séum ekki ánægðir með hugarfar hans á þessu tímabili," sagði Marco Pezzaiuoli, þjálfari Hoffenheim, á heimasíðu félagsins. Simunic hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í sjö leikjum á þessu tímabili og hann verður ekki í leikmannahópnum á morgun á móti Borussia Moenchengladbach. Ástæðan er sögð vera vöðvatognun í læri en það er hægt að lesa á milli línanna að það sé eitthvað meira í ólagi hjá leikmanninum en tognun í vöðva.
Þýski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Klopp býður við rasískum ásökunum Fótbolti Fleiri fréttir Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Mætti Ítölum tuttugu árum eftir að hafa skallað Materazzi Afmælisbarnið dregur sig úr landsliðinu Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Frakkland - Ítalía | Halda Frakkar sigurgöngunni áfram? Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Sjáðu hvernig Portúgalar fóru með Dani eftir brotthvarf Ronaldo „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu City-menn búnir að áfrýja Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Draumadagar Emelíu: Sjáðu fyrsta mark hennar í Meistaradeild Evrópu Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Sjá meira