Viðskipti erlent

Wall Street opnar í mínus

Þrjár helstu vísitölurnar á Wall Street eru allar í rauðum tölum við opnunar markaða fyrir nokkrum mínútum. Við þessu var búist samkvæmt utanmarkaðsviðskiptum í morgun.

Dow Jones vísitalan er 1,7% í mínus, Nasdag er 2,6% í mínus og S&P 500 vísitalan er 2% í mínus í fyrstu viðskiptum dagsins.

Hvað utanmarkaðsviðskiptin varðar sýndu þau græna opnun snemma í morgun en eftir því sem tíminn leið fram að hádegi urðu tölurnar rauðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×