Ferrari bíll seldur á 1,9 milljarða 22. ágúst 2011 08:25
Ferrari Testa Rossa bifreið frá árinu 1957 var seld á uppboði í Kaliforníu um helgina fyrir 16,4 milljónir dollara eða tæplega 1,9 milljarða króna. Þetta er mesta verð sem borgað hefur verið fyrir bifreið í sögunni. Í frétt um málið á CNN Money segir að uppboðsfyrirtækið, Goodings & Co., vilji ekki gefa upp hver kaupandinn var en segir að um sé að ræða þekktan bílasafnara með ástríðu fyrir ítölskum bílum. Bíllinn sem hér um ræðir er af gerðinni Ferrari 250 Testa Rossa og sá fyrsti af þeirri gerð sem smíðaður var af Ferrari verksmiðjunum. Hann var síðan grunnurinn að öllum Testa Rossa gerðum Ferrari næstu árin á eftir. Í þessum bíl er 12 strokka vél sem gefur frá sér 300 hestöfl. Bíll er beinskiptur, fjögurra gíra, og á að baki átta ára sögu á kappakstursbrautum Evrópu á sínum tíma. Hann hefur áður unnið til verðlauna sem fornbíll enda í toppstandi.
Mest lesið Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Viðskipti innlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent Forstjóraskipti hjá Ice-Group Viðskipti innlent Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Viðskipti innlent Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Viðskipti erlent Rukkuð vegna þegar greiddra bílastæða og fá engin svör Neytendur Fleiri fréttir Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Gengi Novo Nordisk steypist niður Samkomulagið það besta mögulega í erfiðum aðstæðum Stærsti olíufundur Evrópu í áratug í Póllandi Hampiðjan kaupir ástralskan kaðlaframleiðanda Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Sjá meira