Lífið

Alex Metric þeytir skífum

Breski plötusnúðurinn Alex Metric spilar á Nasa í kvöld. Hljómsveitin Bloodgroup sér um upphitun.

Metric kom sá og sigraði á síðustu Iceland Airwaves-hátíð. Undanfarið hefur hann hitt í mark víða um Evrópu með laginu Open Your Eyes sem hann gerði í samvinnu við Steve Angello, einum af meðlimum hópsins Swedish House Mafia.

Metric er þessa dagana að vinna að sinni fyrstu plötu sem kemur út í sumar og verður gefin út hjá EMI. Hún inniheldur nýtt efni ásamt endurhljóðblandaðri útgáfu af laginu Sabotage með Beastie Boys sem hefur verið vinsælt að undanförnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×