Lífið

Platan Watch The Throne tilbúin

platan tilbúin Nýja platan frá Kanye West og Jay-Z er nánast tilbúin.
platan tilbúin Nýja platan frá Kanye West og Jay-Z er nánast tilbúin.
jay-z Útgáfudagur Watch The Throne hefur ekki verið ákveðinn.
Upptökustjórinn Guru sem er að vinna að nýjustu plötu rapparanna Jay-Z og Kanye West segir að gripurinn sé nánast tilbúinn. Útgáfudagur hefur samt ekki verið ákveðinn. „Ég er að reyna að fá Jay og Kanye til að drífa sig að klára Watch The Throne því heimurinn þarf að hlusta á þessa plötu,“ sagði hann. „Það þarf að lagfæra nokkur smáatriði en annars er platan tilbúin. Kanye vill bæta við það sem upptökustjórar gera og í því liggur snilligáfa hans.“

Fyrsta lagið af plötunni, H.A.M., kom út í janúar. Rapparinn Talib Kweli, vinur þeirra Jay-Z og Kanye segir það ekki líkjast hinum lögunum á plötunni. „Það var örugglega síðasta lagið sem ég bjóst við að heyra frá Jay og Kanye. Þeir eiga nokkur tromp uppi í erminni. Þeir eiga lög sem eru týpískari fyrir þá. Miðað við það sem ég hef heyrt hafa þeir haft fjölbreytileikann að leiðarljósi,“ sagði hann.

Kanye West er einnig með nýja sólóplötu í undirbúningi sem er væntanleg í sumar. Hún mun fylgja eftir hinni vel heppnuðuðu My Beautiful Dark Twisted Fantasy sem kom út í lok síðasta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×