Gylfi Þór orðaður við Atletico Madrid í spænskum fjölmiðlum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. febrúar 2011 13:30 Gylfi Þór Sigurðsson í leik með Hoffenheim. Nordic Photos / Bongarts
Spænska dagblaðið As fullyrðir í dag að Atletico Madrid hafi áhuga á að fá Gylfa Þór Sigurðsson til liðs við sig næsta sumar. Blaðið segir að til standi að styrkja liðið fyrir næsta tímabil en liðinu hefur ekki gengið sem skyldi í ár. Atletico er í sjöunda sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 30 stig, ellefu stigum frá fjórða sætinu sem er það síðasta sem tryggir spænskum liðum þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu. Því ætli liðið að mæta sterkara til leiks á næsta ári og efstir á óskalista forráðamanna félagsins eru þeir Gylfi Þór og Anderson, leikmaður Manchester United. Gylfi var keyptur til þýska liðsins Hoffenheim í sumar á 5,2 milljónir evra. Hann hefur staðið sig vel á sínu fyrsta tímabili og er markahæsti leikmaður liðsins með sjö mörk í deild og bikar. Ólíklegt þykir að Hoffenheim sé reiðbúið að selja Gylfa en það er þó aldrei að vita. Félagið seldi bæði Demba Ba (til West Ham) og Luiz Gustavo (til Bayern München) nú í janúar og í sumar keypti rússneska félagið Rubin Kazan einn besta leikmann liðsins á síðustu leiktíð, Brasilíumanninn Carlos Eduardo. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Gylfi er orðaður við stórlið í Evrópu en hann var fyrir nokkrum vikum sagður undir smásjá Manchester United.
Spænski boltinn Þýski boltinn Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Fleiri fréttir Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Sjá meira