Falcao afgreiddi Athletic Bilbao - Atlético Madrid vann Evrópudeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. maí 2012 18:15 Radamel Falcao fagnar. Mynd/Nordic Photos/Getty
Kólumbíumaðurinn Radamel Falcao tryggði Atlético Madrid sigur í Evrópudeildinni og sér sérkafla í sögu keppninnar þegar hann skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Atlético Madrid á Athletic Bilbao í uppgjör tveggja spænskra liða í úrslitaleik Evrópudeildarinnar sem fram fór í Búkarest í kvöld. Falcao vann Evrópudeildina þar með annað árið í röð en hann skoraði sigurmark Porto í úrslitaleiknum í Dublin í fyrra. Bæði árin hefur Falcao einnig verið markakóngur keppninnar en hann skoraði 12 mörk í 15 leikjum í Evrópudeildinni á þessu tímabili. Þetta er í annað skiptið á þremur árum sem Atlético Madrid vinnur Evrópudeildina en liðið vann 2-1 sigur á Fulham í úrslitaleiknum í Hamborg árið 2010. Atlético Madrid vann tólf síðustu leiki sína í keppninni í ár. Falcao kom Atlético Madrid í 1-0 strax á 6. mínútu leiksins með góðu skoti utarlega úr vítateignum eftir að hafa fengið alltof mikinn tíma í teignum. Falcao bætti síðan við öðru marki á 34. mínútu eftir flotta sókn og sendingu frá Arda Turan. Falcao fékk boltann í teignum, snéri sér laglega ala Johan Cryuff og skoraði af öryggi. Diego innsiglaði síðan 3-0 sigur Atlético Madrid fimm mínútum fyrir leikslok eftir laglegt einstaklingsframtak þar sem hann labbaði í gegnum vörn Bilbao.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Handbolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fleiri fréttir Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Sjá meira