Olíuverkfallið í Noregi stöðvað með neyðarlögum 10. júlí 2012 06:30
Norska stjórnin greip til neyðarlaga seint í gærkvöldi til að stöðva verkfallið sem verið hefur meðal norskra olíustarfsmanna undanfarnar tvær vikur og koma í veg fyrir boðað verkbann olíuframleiðenda landsins sem átti að hefjast um miðnættið. Hanne Bjurström atvinnumálaráðherra Noregs segir að ákvörðunin sé tekin til að vernda þjóðarhagsmuni Noregs og að hún beri ábyrgð á henni. Þetta hafi hinsvegar verið þung ákvörðun fyrir hana. Úrslitatilraun til að ná samkomulagi milli verkalýðsfélaganna og olíuframleiðendanna var gerð aðfararnótt sunnudagsins en bar ekki árangur. Norskir olíuframleiðendur gátu alls ekki fallist á kröfur verkalýðsfélagana um að lækka eftirlaunaaldur olíustarfsmanna úr 65 árum og niður í 62 ár. Ef olíuframleiðslan hefði stöðvast hefði það kostað Norðmenn miklar fjárhæðir. Áætlað var að tap Statoil hefði numið um 550 milljónum norskra króna eða 11 milljörðum króna á dag.
Mest lesið Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira