Viðskipti erlent

Ævintýralegur vöxtur snjallasímamarkaðar

Magnús Halldórsson skrifar
Snjallsímar eru nú í höndum meira en milljarðs manna í heiminum, en sala á þeim hefur verið gríðarlega hröð, frá því að þeir komu fyrst á markað.
Snjallsímar eru nú í höndum meira en milljarðs manna í heiminum, en sala á þeim hefur verið gríðarlega hröð, frá því að þeir komu fyrst á markað.
Sala á snjallsímum hefur verið ævintýralega mikil á undanförnum árum, en sérfræðingar gera ráð fyrir að ekki muni draga úr hraða sölunnar fyrr en á næsta ári. Ástæðan fyrir að hægja mun á sölunni á endanum, er einfaldlega sú að vöxturinn hefur verið svo hraður, að ómögulegt er talið að viðhalda honum, þar sem mörg hundruð milljónir manna eru nú komnar með snjallsíma í hendurnar, og munu ekki allir endurnýja þá hratt.

Samkvæmt upplýsingum sem rannsóknarfyrirtækið IDC tekur saman reglulega voru sölutölurnar ekki síst athyglisverðar fyrir árin 2010 og 2011. Ekki liggja fyrir upplýsingar um stöðu mála í lok árs 2012, en vöxturinn hélt áfram á því ári þegar nær öll met voru slegin.

Samsung er stærsta snjallsímafyrirtæki heimsins, og Apple kemur fast á eftir. Aðrir framleiðendur eru nokkuð á eftir þeim. Nokia var framan af einn stærsti söluaðili snjallsíma í heiminum, einkum í Asíu, en salan hefur minnkað mikið, og var langt frá Apple og Samsung á árinu 2012, samkvæmt fréttum, en eins og áður sagði þá liggja heildartölur fyrir það ár ekki fyrir enn. Þá segja sölutölurnar ekki alla söguna, þar sem verð eru misjöfn á símunum, allt eftir gæðum og tegundum.

Tæplega 800 milljónir snjallsíma seldust á heimsvísu á árunum 2010 og 2011, samkvæmt upplýsingum IDC. Þessi sala hefur haft mikil áhrif á ýmsa þjónustu, sem nú er orðin aðgengileg í gegnum snjallsíma, s.s. bankaþjónusta og ýmis smásala.

Sjá má upplýsingar um sölu og markaðshlutdeild, í töflu hér að neðan, en upplýsingar koma frá IDC.

Snjallsímar

2011 sala á snjallsímum

2011 Markaðs- hlutdeild

2010 sala á snjallsímum

2010 Markaðs-hlutdeild

Breytingar milli ára

Samsung

94.0

19.1%

22.9

7.5%

310.5%

Apple

93.2

19.0%

47.5

15.6%

96.2%

Nokia

77.3

15.7%

100.1

32.9%

-22.8%

Research In Motion

51.1

10.4%

48.8

16.0%

4.7%

HTC

43.5

8.9%

21.7

7.1%

100.5%

Aðrir

132.3

26.9%

63.7

20.9%

107.7%

Samtals



491.4

100.0%

304.7

100.0%

61.3%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×