Handbolti

Evgeni Trefilov tekur við Rússum á ný

Stefán Árni Pálsson skrifar
Evgeni Trefilov
Evgeni Trefilov mynd / getty images
Rússinn Evgeni Trefilov er tekinn við rússneska kvennalandsliðinu á ný en honum var sagt upp síðasta haust eftir að liðinu hafði ekki gengið sem skildu á árunum áður.

Þjálfarinn gerði liðið fjórum sinnum að heimsmeisturum á sínum tíma með liðið og er þekktur fyrir skrautlega hegðun á varamannabekknum sem og í viðtölum eftir leik.

Rússneska handknattleikssambandið hefur nú ráðið kappann á ný og á hann að skila liðinu á næsta Evrópumót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×