Ásgeir og Jórunn skotíþróttafólk ársins 18. desember 2013 12:15 Ásgeir Sigurgeirsson. Mynd/Anton
Skotíþróttasamband Íslands hefur valið Ásgeir Sigurgeirsson og Jórunni Harðardóttur, bæði úr Skotfélagi Reykjavíkur, skotíþróttafólk ársins 2013. Ásgeir, sem er fæddur árið 1985, er landsliðsmaður í loftskammbyssu og frjálsri skammbyssu. Hann er sem stendur 17. sæti á Evrópulistanum og í 30.sæti á heimslistanum í loftskammbyssu. Einnig er Ásgeir inná listunum í frjálsri skammbyssu, í 19. sæti á Evrópulistanum og í 39. sæti á heimslistanum. Hann sigraði á öllum innlendum mótum sem hann tók þátt í á árinu og varð bæði Íslands- og bikarmeistari í sínum greinum. Ásgeir komst í úrslit á Evrópumeistaramótinu í Danmörku í janúar og hafnaði þar í 8.sæti af 61 keppanda í loftskammbyssu. Einnig keppti hann í frjálsri skammbyssu á Evrópumeistaramótinu í Króatíu og hafnaði þar í 15. sæti. Hann varð í 2.sæti á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg. Einnig hafnaði hann í 14. sæti í frjálsri skammbyssu og 19. sæti í loftskammbyssu á heimsbikarmótinu í Kóreu og í 22. sæti á heimsbikarmótinu í München í lok maí.Jórunn.Jórunn, sem er fædd árið 1968, er landsliðskona í riffli og skammbyssu. Hún náði silfurverðlaunum í loftskammbyssu á Smáþjóðaleikunum í Luxemburg og eins komst hún í úrslit í loftriffli á sama móti. Hún varð Íslandsmeistari í 60 skota liggjandi riffli, Íslandsmeistari í frjálsri skammbyssu og eins í loftskammbyssu. Einnig varð hún Reykjavíkurmeistari í loftriffli.
Íþróttir Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Fótbolti „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Fleiri fréttir KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Fram - Afturelding | Hörkuleikur í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal | Lífið án Ronaldos Írland - Austurríki | Lykilleikur fyrir Heimi í miðjum stormi Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Þýsku meistararnir unnu stórsigur í Meistaradeildinni Sjá meira