Messi: Ég vil enda ferilinn hjá Barcelona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2014 17:34 Lionel Messi stimplaði sig inn með tveimur mörkum í fyrsta leik. Mynd/NordicPhotos/Getty
Argentínumaðurinn Lionel Messi er byrjaður að spila á ný með Barcelona eftir tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla en hann kom inná sem varamaður og skoraði tvö mörk í 4-0 sigri á Getafe í gærkvöldi. Samningamál Messi og Barcelona voru í sviðsljósinu fyrir áramót en fjölmiðlar voru þá með fréttir af ósætti Messi og íþróttastjórans Javier Faus um nýjan samning. Núverandi samningur Messi var framlengdur í febrúar í fyrra og rennur nú út í júní 2018. Messi er ekki í vafa hvar hann vill spila. „Ég vil enda ferilinn hjá Barcelona. Ef fólkið vill mig þá vil ég spila allan minn feril með Barcelona," sagði Lionel Messi í viðtali við sjónvarpsstöð Barcelona, El Marcador. Lionel Messi er nú 26 ára gamall en hann er á sínu tíunda tímabili með aðalliði Börsunga og er þegar orðinn markahæsti leikmaður félagsins bæði í spænsku deildinni (223), Meistaradeildinni (65) og í öllum keppnum (329). „Síðustu tveir mánuðir hafa vissulega verið erfiðir. Ég er hinsvegar úthvíldur andlega, ánægður og staðráðinn að afreka eitthvað með Barca á þessu tímabili," sagði Messi. Hann hefur verið að glíma við endurteknar tognanir aftan í læri en fór í sér mánaðarmeðferð í Argentínu fyrir áramót. „Ég ætla að reyna að bæta við liðið og hjálpa félaginu að ná sínum markmiðum. Það eru erfiðir mánuðir framundan en við ætlum að berjast á öllum vígstöðum eins og við gerum alltaf," sagði Messi.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fleiri fréttir Hansen með gylliboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjá meira