Ofurskálin ber nafn með rentu Birgir Sverrisson skrifar 31. janúar 2014 23:45 Stuðningsmenn Seattle Seahwks, sem er í eigu auðjöfursins og Íslandsvinarins Paul Allen, eru mættir á austurströndina. Þeir ganga undir viðurnefninu "Tólfti maðurinn“. Vísir/AFP
Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum áhugamönnum um amerískan fótbolta að Super Bowl eða “Ofurskálin” fer fram vestanhafs annað kvöld. Það hefur ef til vill ekki heldur farið framhjá mörgum sem fylgjast með þessari íþrótt að þessi árlegi viðburður er frægur fyrir margar aðrar sakir heldur en það sem fylgir venjulegum leik í NFL deildinni. Aukaatriði eins og tónleikar í hálfleik, auglýsingar í sjónvarspútsendingunni og fjölmiðlaupphitunin vikuna fyrir leikinn (og eftir) eru nefnilega þættir sem auka verðgildi þessa viðburðar gífurlega, sem er skv. bandaríska viðskiptatímaritinu Forbes lang verðmætasti íþróttaviðburður heims.Stuðningsmenn Denver Broncos með hetjuna sína, Payton Manning leikstjórnanda Broncos, í fanginu.Vísir/AFPMiðað við þeirra útreikinga þá var síðasti Super Bowl viðburður í New Orleans metinn á ríflega þrisvar sinnum meira heldur en heimsmeistarkeppnin í knattspyrnu, sem er stærsti íþróttaviðburður heims. Raunar er það svo að heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu og fleiri aðrir viðburðir skila margfalt hærri tekjum heldur en Super Bowl en vegna þess að sjálfur viðburðurinn stendur einungis yfir í einn dag þá hefur hann vinninginn. Talið er að Super Bowl á síðasta ári hafi skilað National Football League (NFL) 474 milljónum bandaríkjadala í tekjur, sem var reyndar örlítil lækkun frá árinu á undan aðallega vegna þess að miðasala gekk ekki eins vel. Það var líka almennt meiri áhugi fyrir leiknum árið 2012 milli New England Patriots og New York Giants, sem á einmitt metið í mesta áhorfi á útsendingu í sögu bandarísks sjónvarps með 111 milljónir áhorfenda.Mikið mun mæða á Marshawn Lynch hjá Seattle Seahawks í Ofurskálinni á sunnudagskvöldið.Vísir/AFP Þrjár stórar sjónvarsstöðvar (CBS, Fox og NBC) skiptast nú á að sýna viðburðinn. Hvernig þeim tekst að selja augýsingar fyrir útsendinguna er stór ákvörðunarþáttur í þeirra tekjustreymi fyrir rekstrarárið en þó er nánast öruggt að plássin seljist upp. Auglýsingar fyrir leikinn nk. sunnudag seldust upp í desember sl. og hverjar 30 sekúndur af auglýsingaplássi kosta nú að meðatali um 4 milljónir dala, miðað við 3,75 milljónir í fyrra. Sökum fjölda leikhléa og eðli leiktímans þá er magn auglýsingatímans hlutfallslega mjög hátt. Því ætti ekki að koma á óvart að sjónvarspsstöðvarnar eru að selja auglýsingar fyrir um 220-250 milljónir dala í útsendingunni. Hins vegar kostar rétturinn til þess að sýna leikinn sjálfan oft 80-90% af auglýsingatekjunum og því reiða sjónvarsstöðvarnar sig á tekjuöflun tengda útsendingum fyrir og eftir leikinn þar sem kostnaður við útsendinguna sjálfa myndi annars þýða að stöðin hreinlega tapaði. Smá hluti af ástæðunni fyrir þessu háa auglýsingaverði er einnig sá að fólki finnst þær almennt skemmtilegar og gætu þessir auglýsingatímar hreinlega talist afþreyingarefni á mörgum bandarískum heimilum. Samkvæmt markaðsrannsóknarfyrirtækinu Kantar Media þá eyðir um fjórðungur fyrirtækja sem auglýsa í Super Bowl meira en 10% af heildar auglýsingakostnaði fyrir allt árið í auglýsingar tengdar leiknum, og hefur það hlutfall verið tiltölulega stöðugt gegnum árin en á móti kemur að prósentan í heildarkostnaði hefur risið hjá þessum minnihlutahópi sl. tvö ár. Þetta hefur þýtt að auðveldara er að selja langar auglýsingar og því hefur fjöldi auglýsenda fækkað þrátt fyrir aukinn heildar auglýsingatíma. Þá hefur auglýsingatíminn skiptst frekar á auðug fyrirtæki sem hafa auðveldlega efni á að auglýsa í 2-4 mínútur en einnig á nýliða sem eyða háu hlutfalli eða allt að 30% af sínum árlega kynningarkostnaði í að veðja á að koma sínum vörumerkjum almennilega á kortið með því að auglýsa í eitt skipti fyrir öll.Stuðningsmenn Broncos í New York.Vísir/AFP Einn af reglulegum gestum á sjónvarspsskerminum í leikhléum er bjórframleiðandinn Anheuser-Busch sem hefur verið hvað mest áberandi í þessum bransa undanfarin ár. Bíða oft margir óþreyjufullir eftir þeirra sérstöku Super Bowl auglýsingum sem oft geta verið hið mesta grínefni. Fyrirtækið hefur eytt að meðaltali í kringum 25 milljónum dala í hvern leik undanfarin tíu ár og hreinlega kjöldregur Pepsi Co. sem er í öðru sæti. Þá hefur það einnig greitt fyrir einkarétt á bjórauglýsingum tengdum leiknum sem er ekki talið með í kostnaðinum. Anhauser-Busch mun í þetta sinn aðeins auglýsa tvo vinsælustu drykkina sína í samtals þrjár og hálfa mínútu á kostnað nýjunga þar sem talið er að aðalkeppinauturinn, Coors Light, sé að sækja í sig veðrið. Tortímandinn sjálfur, Arnold Schwarzenegger, mun birtast í auglýsingu fyrir Bud Light í þetta skiptið. Auglýsinguna má sjá hér að neðan.Madonna skemmti í hálfleik á Super Bowl fyrir tveimur árum. Í ár sjá Bruno Mars og Red Hot Chili Peppers um að skemmta heimsbyggðinni.Vísir/AFP Einnig er fróðlegt að skoða neyslutölur í kringum þennan íþróttaleik en skv. Alþjóðlega hitaeiningaráðinu (Calorie Control Council) þá er áætlað að meðal bandarískur Super Bowl áhorfandi neyti 1200 hitaeininga og 50 gramma af hreinni fitu einungis frá snakki, sælgæti og meðlæti og eru þá máltíðir ekki taldar. Pizzur og kjúklingvængir eru vinsælustu máltíðirnar og telur Kjúklingaráð Bandaríkjanna (The National Chicken Council) að það séu borðaðir 1,2-1,3 milljarðar kjúklingavængja þessa helgi og þó það sé ekki skiljanleg samlíking frekar en sú staðreynd að það væri hægt að fylla leikvanginn sjálfan af því guacamole sem fer í neyslu, þá væri hægt að breiða úr þessum fjölda vængja tvisvar sinnum umhverfis jörðina. Til þess að komast í hóp ríflega 85 þús. áhorfenda á MetLife Stadium á sunnudaginn þarf meðal manneskja að grafa ofan í veskið. Ódýrustu miðarnir á leikinn kostuðu 500 dollara skv. opinberum tölum en á vefsíðunni Stubhub.com, sem er stór vettvangur fyrir endursölu á miðum, er ódýrasti miðinn nú á um 1600 dollara og þeim fylgja ekki bílastæði (kosta 250 dollara aukalega). Dæmi eru um að lúxus svítur sem rúma 8-12 manns séu til endurleigu á í kringum eina milljón dollara. Þrátt fyrir að þessi viðburður sé gríðarstór tekjulind að þá safnar hann ekki nema um 5% af heildartekjum National Football League, sem er lang tekjuhæsta íþróttadeild í heiminum í dag með yfir 10 milljarða dollara í árstekjur.Super Bowl XLVIII milli Denver Broncos og Seattle Seahawks fer fram á Metlife Stadium í New Jersey verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD á sunnudagskvöld. Upphitun hefst klukkan 22.00 en leikurinn sjálfur klukkan 23.25. Andri Ólafsson stýrir umræðum á meðan leiknum stendur og áhorfendur eru hvattir til að taka þátt á Twitter með merkinu #NFLisland.
NFL Tengdar fréttir Carroll: Sprengjusveitin ótrúlegur hópur Pete Carroll, þjálfari Seattle Seahawks, er ánægður með hversu öflugan hóp varnarmanna hann er með í sínu liði. 1. febrúar 2014 19:00 Sportspjallið: Hitað upp fyrir Super Bowl Denver Broncos og Seattle Seahawks eigast við í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, í New York á sunnudagskvöld. 30. janúar 2014 11:59 Eli hélt að Peyton Manning væri búinn eftir fyrstu aðgerðina Eli Manning, bróðir Peyton Manning og leikstjórnandi New York Giants í NFL-deildinni, var búinn að afskrifa það að eldri bróðir sinn gæti komið til baka í boltann eftir að hafa farið í gegnum fyrstu hálsaðgerðina. 30. janúar 2014 22:30 Seahawks-liðið fékk óvenjulegan stuðning í háloftunum Boeing flugvélaverksmiðjan sýndi stuðning sinn við Seattle Seahawks liðið með sérstökum hætti í vikunni þegar hún lét flugvél í reynsluflugi fljúga afar táknræna flugleið. 31. janúar 2014 23:30 Mikil öryggisgæsla á Super Bowl Fyllstu varúðar gætt vegna hugsanlegrar hryðjuverkaárásar. 30. janúar 2014 09:52 Wilson: Ég vil líkjast Peyton Seattle-maðurinn Russell Wilson segist bera mikla virðingu fyrir Peyton Manning, leikstjórnanda Denver Broncos. 1. febrúar 2014 23:30 Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Fótbolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Fótbolti Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Fleiri fréttir Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjör og viðtöl: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Hafði aldrei komið til Evrópu en nú er hann efstur á Opna breska Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Vonar að hann fái að halda áfram að reykja Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Verstappen breytir bílnum eftir tvo árekstra Tuchel á skilið launalækkun og gleðilegan gluggadag Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Sjá meira
Carroll: Sprengjusveitin ótrúlegur hópur Pete Carroll, þjálfari Seattle Seahawks, er ánægður með hversu öflugan hóp varnarmanna hann er með í sínu liði. 1. febrúar 2014 19:00
Sportspjallið: Hitað upp fyrir Super Bowl Denver Broncos og Seattle Seahawks eigast við í Super Bowl, úrslitaleik NFL-deildarinnar, í New York á sunnudagskvöld. 30. janúar 2014 11:59
Eli hélt að Peyton Manning væri búinn eftir fyrstu aðgerðina Eli Manning, bróðir Peyton Manning og leikstjórnandi New York Giants í NFL-deildinni, var búinn að afskrifa það að eldri bróðir sinn gæti komið til baka í boltann eftir að hafa farið í gegnum fyrstu hálsaðgerðina. 30. janúar 2014 22:30
Seahawks-liðið fékk óvenjulegan stuðning í háloftunum Boeing flugvélaverksmiðjan sýndi stuðning sinn við Seattle Seahawks liðið með sérstökum hætti í vikunni þegar hún lét flugvél í reynsluflugi fljúga afar táknræna flugleið. 31. janúar 2014 23:30
Mikil öryggisgæsla á Super Bowl Fyllstu varúðar gætt vegna hugsanlegrar hryðjuverkaárásar. 30. janúar 2014 09:52
Wilson: Ég vil líkjast Peyton Seattle-maðurinn Russell Wilson segist bera mikla virðingu fyrir Peyton Manning, leikstjórnanda Denver Broncos. 1. febrúar 2014 23:30