Handbolti

Sætur sigur hjá Arnóri og félögum

Arnór í leik á EM.
Arnór í leik á EM. vísir/daníel
Arnór Atlason og félagar í franska félaginu St. Raphael komust upp í fjórða sæti frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld eftir dramatískan sigur, 26-25, á Cesson Rennes.

Arnór og félagar leiddu nær allan leikinn en Cesson-Rennes átti góðan endasprett og náði að jafna, 25-25.

Sigurmarkið kom svo rúmri mínútu fyrir leikslok. Vörn St. Raphael hélt undir lokin og liðið fagnaði sætum sigri.

Arnór er enn að jafna sig eftir meiðsli og tók því takmarkaðan þátt í leiknum. Hann skaut tvisvar að marki en náði ekki að skora.

St. Raphael er fimm stigum á eftir toppliði PSG.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×