Stöðvuðu íranska vopnasendingu Elimar Hauksson skrifar 5. mars 2014 21:45 M-302 eldflaugarnar voru faldar á milli sementspoka um borð í skipinu. Þær hafa 200 kílómetra drægi og voru meðal annars notaðar af Hezbollah í borgarastyrjöldinni í Líbanon á síðustu öld. Mynd/AFP
Ísraelar lögðu í dag hald á íranska vopnasendingu um borð í skipi við strendur Súdan en frá þessu greinir á vef BBC. Vopnasendingin var um borð í skipi sem bar fána Panama en talið er að vopnin hafi verið á leið til Gaza strandarinnar, þar sem Hamas samtökin ráða ríkjum. Um borð í skipinu fundust M-302 eldflaugarnar sem voru faldar á milli sementspoka. Þær hafa 200 kílómetra drægi og voru meðal annars notaðar af Hezbollah samtökunum í borgarastyrjöldinni í Líbanon á síðustu öld. Haft er eftir yfirmanni ísralesku öryggissveitarinnar IDF að sautján manna áhöfn skipsins hafi ekki vitað af því að vopnasendingin hafi verið um borð en fylgst hafi verið með sendingunni í nokkra mánuði. Henni hafi fyrst verið flogið frá Damaskus til Tehran og þaðan til suðurhluta Írans þar sem henni var komið fyrir um borð í skipinu en þaðan hafi sendingin farið til Írak þar sem sementspokum var hlaðið yfir vopnin. Skipið hafi svo siglt af stað til Súdan þar sem það var stöðvað af Ísraelum áður en það náði til hafnar, um 1500 kílómetrum frá Ísrael. Hamas samtökin hafa staðfastlega neitað fyrir það að sendingin hafi verið á leið til þeirra á Gaza svæðið en meira en 60 eldflaugum hefur verið skotið til Ísraels frá Gaza síðan í byrjun síðasta árs.Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, fullyrti á blaðamannafundi í dag að vopnin hefðu verið notuð gegn Ísrael hefðu þau komist á áfangastað. Netanyahu er nú í opinberri heimsókn í Bandaríkjunum en hann hefur þrýst á að alþjóðasamfélagið taki harðar á kjarnorkuáætlun Írana og vopnasölu Írana, meðal annars til Hamas samtakanna og Hezbollah.
Gasa Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira