Bjarki og Norma Dögg Íslandsmeistarar í fjölþraut Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2014 18:28 Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni. Mynd/Heimasíða Ármanns
Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni og Norma Dögg Róbertsdóttir úr Gerplu urðu í dag Íslandsmeistarar í fjölþraut á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum en bæði voru þau að vinna titilinn í fyrsta sinn.Norma Dögg Róbertsdóttir endaði þar með fjögurra ára sigurgöngu Thelmu Rutar Hermannsdóttur og kom í veg fyrir að Thelma Rut yrði sú fyrsta til að vinna sex Íslandsmeistaratitla í fjölþraut. Norma Dögg var með bestu einkunn í stökki og endaði í þriðja sæti í bæði keppni á tvíslá og á gólfi. Það varð henni ekki að falli að ná bara sjötta besta árangrinum á jafnvægisslá. Agnes Suto úr Gerplu varð í 2. sæti og Thelma Rut, sem keppir fyrir Gerplu, varð þriðja en það gekk illa hjá fráfarandi Íslandsmeistara í bæði stökki og á tvíslá. Thelma Rut var hinsvegar með bestu einkunn allra á gólfi og varð í 2. sæti á slá þar sem Tinna Óðinsdóttir stóð sig best.Bjarki Ásgeirsson fékk samtals 78,450 stig og varð efstur þrátt fyrir að ná bestu einkunn í bara einni af sex greinum. Bjarki fékk bestu einkunn á bogahesti en varð í öðru sæti á gólfi og í hringjum. Valgarð Reinhardsson úr Gerplu endaði í 2. sæti í fjölþrautinni en hann fékk bestu einkunn á gólfi, á tvíslá og á svifrá. Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni varð síðan þriðji en hann fékk bestu einkunn allra í hringjum.Eyþór Örn Baldursson úr Gerplu og Nanna Guðmundsdóttir úr Gróttu urðu Íslandsmeistarar í unglingaflokki.
Íþróttir Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira