Handbolti

Ásgeir og Snorri fóru á kostum

Ásgeir Örn skorar hér fyrir PSG á síðustu leiktíð.
Ásgeir Örn skorar hér fyrir PSG á síðustu leiktíð. vísir/afp
Landsliðsmennirnir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Snorri Steinn Guðjónsson fóru mikinn í franska handboltanum í kvöld. Báðir voru þeir markahæstir hjá sínum liðum.

Stórleikur Snorra Steins Guðjónssonar fyrir Sélestat dugði reyndar ekki til gegn Créteil í franska handboltanum.

Snorri skoraði sjö mörk fyrir sitt lið í kvöld en Créteil var alltaf nokkrum skrefum á undan og vann sannfærandi sigur, 41-31.

Ásgeir Örn Hallgrímsson var einnig í miklu stuði og hann skoraði sex mörk fyrir Nimes sem vann flottan heimasigur á Tremblay, 29-21.

Þetta voru leikir í fyrstu umferð deildarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×