Handbolti

Rhein-Neckar Löwen tapaði í Ungverjalandi

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alexander Petersson
Alexander Petersson vísir/getty
Ungverskaliðið Veszprém lagði þýska félagið Rhein-Neckar Löwen 27-24 á heimavelli í annarri umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Ungverska liðið var ávallt á undan í leiknum en liðin unnu bæði leiki sína í fyrstu umferðinni.

Alexander Petersson skoraði 5 mörk fyrir Löwen en Stefán Rafn Sigurmannsson leikur einnig með liðinu. Uwe Gensheimer skoraði mest fyrir Löwen eða 9 mörk.

Momir Ilic skoraði 9 mörk fyrir Veszprém og Laszlo Nagy og Renato Sulic 4 hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×