Handbolti

Guðjón Valur með fjögur mörk í dramatísku jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón skoraði fjögur mörk.
Guðjón skoraði fjögur mörk. Vísir/Barcelona
Barcelona og KIF Kolding skildu jöfn í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag, en leikurinn fór fram í Danmörku. Leikurinn var hnífjafn og virkilega spennandi.

Börsungar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og leiddu 16-14 í hálfleik. Dönsku meistararnir gáfu aldrei tommu eftir og Martin Dolk jafnaði metin úr vítakasti fjórum sekúndum fyrir leikslok.

Lokatölur 27-27, en Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir gestina.

Glæsilegt jafntefli hjá Aroni Kristjánssyni og lærisveinum í Kolding sem hafa unnið Evrópumeistarana í Flensburg og gert jafntefli við stórlið Barcelona það sem af er riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×