Íslenski boltinn

Jón Jónsson segir að Höddi Magg kunni ekki að girða sig

Hafnfirðingarnir Jón Ragnar Jónsson og Hörður Magnússon eru í aðalhlutverki í nýjustu auglýsingu Pepsimarkanna.

Þá er Jón Ragnar afar ósáttur við gagnrýni Harðar þannig að hann mætir á svæðið og tekur Hörð í gegn.

Sjá einnig: Arnar Gunnlaugsson stimplar sig inn í Pepsimörkin með stæl

Upphitunarþáttur Pepsimarkanna hefst klukkan 21.00 í kvöld og deildin byrjar svo á sunnudag.

Þá mun Stöð 2 Sport sýna beint frá leik nýliða ÍA og Íslandsmeistara Stjörnunnar. Á mánudag verður svo leikur KR og FH í beinni.

Í kjölfarið fer í loftið fyrsti þáttur sumarsins af Pepsimörkunum.

Jóhannes Karl Guðjónsson lét umsjónarmenn Pepsimarkanna einnig heyra það. Sem og Gunnleifur Gunnleifsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×