Ter Stegen: Erum í góðri stöðu til að vinna þrennuna Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2015 12:30 Marc-André ter Stegen spilar ekki jafnmarga leiki og hann gerði í Þýskalandi.
Marc-André ter Stegen, þýski markvörðurinn hjá Barcelona sem spilar Meistaradeildar- og bikarleiki liðsins, segir liðið í frábærri stöðu til að vinna þrennuna. Barcelona er með fjögurra stiga forystu á toppi spænsku 1. deildarinnar og þarf aðeins að vinna annan af tveimur síðustu leikjum liðsins til að endurheimta Spánarmeistaratitilinn. Þá er liðið komið í úrslitaleik spænska bikarsins þar sem það mætir Athletic Bilbao og í kvöld geta Börsungar komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Barcelona er 3-0 yfir gegn Bayern München eftir fyrri leikinn á Nývangi þar sem Lionel Messi fór á kostum og skoraði tvö mörk og gaf eina stoðsendingu. „Við erum í góðri stöðu til að vinna þrennuna. Við erum í úrslitum bikarsins og efstir í deildinni. Svo gætu hlutirnir ekki verið í betri málum í Meistaradeildinni,“ segir Ter Stegen í viðtali við vefsíðu UEFA. Þýski markvörðurinn kom frá Borussia Mönchengladbach síðasta sumar en náði ekki að vinna sér inn sæti sem aðalmarkvörður Barcelona. Hann spilar sem fyrr segir leikina í bikar og Meistaradeild. „Þetta er öðuruvísi fyrir mig og hefur verið mikil breyting. Svo er menningin líka allt önnur. Það erfiðasta er að spila ekki vikulega en Bravo er að spila vel í deildinni og stendur sig vel,“ segir Marc-André ter Stegen.
Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía og stöllur í góðum gír Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Sjá meira