Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 22. október 2015 08:23 Sigmundur Davíð segir að afnám verðtryggingar væri komið lengra ef ekki væri fyrir ákveðna "varðhunda.“ Vísir/Daníel
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segist finna fyrir sterkum öflum í samfélaginu sem ekki vilja sleppa tökum á verðtryggingunni. Þeirra sé meðal annars að gæta innan Sjálfstæðisflokksins. Þetta kom fram í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. Viðtalið má heyra hér að ofan. Þá sagði Sigmundur að hann fyndi fyrir sömu andstöðu gegn afnáminu í ákveðnum flokki stjórnarandstöðunnar og nefndi í því samhengi „flokkinn sem við töluðum um áðan“ eða fyrr í viðtalinu hér að ofan og átti þar við Samfylkinguna. „Enda með mjög sterkar tengingar inn í þann hluta verkalýðshreyfingarinnar sem sjá rautt þegar talað er um þetta,“ sagði Sigmundur og var þá spurður hvort hann ætti við lífeyrissjóðina. Hann jánkaði því og bætti við að hann ætti einnig við aðra forystumenn verkalýðshreyfingarinnar og viðurkenndi að þar ætti hann við ASÍ. „Ef menn ynnu saman í þessa átt þá værum við komin lengra.“Umræðan á Alþingi ekki byggð á rökum Sigmundur var spurður út í umræðuna á Alþingi undanfarið en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að skorast undan því að taka umræðuna um afnám verðtryggingar. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir bað í febrúar um sérstaka umræðu um málið og endurtók hún beiðni sína í upphafi þings. Hún og aðrir þingmenn Samfylkingarinnar létu í sér heyra þegar ljóst var að Sigmundur hugðist ekki svara beiðninni. Þá hafa samflokksmenn Sigmundar gagnrýnt hann fyrir að lúffa fyrir Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að verðtryggingunni en þingmenn Framsóknar lofuðu afnámi verðtryggingar strax eftir kosningar 2013.Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona Samfylkingarinnar, spyr hvort forsætisráðherra fari ekki enn með verkstjórn í ríkisstjórninni.Sigmundur sagðist í þættinum tilbúinn til þess að ræða verðtrygginguna við hvern sem er. „Ég vil ræða verðtrygginguna við alla,“ sagði hann, nefndi Samfylkinguna og þáttastjórnendur, en sagði að þar sem Sigríður Ingibjörg væri að biðja um sérstaka umræðu um málið væri það ráðherrann sem er yfir málaflokknum sem sitja ætti fyrir svörum. Það er Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.Engar staðreyndir bara hávaði segir forsætisráðherra „Það er bara hávaðinn sem kemst í gegn, ekki staðreyndir málanna,“ sagði Sigmundur sem segist vera sá forsætisráðherra sem hafi verið hvað mest viðstaddur umræður á Alþingi á síðustu árum. „Þarna er verið að hjakka í málinu bara til að fá athyglina.“ Stjórnarandstaðan hefur farið fram á að greidd verði atkvæði um hvort sérstök umræða um málið verði tekin fyrir og fer sú atkvæðagreiðsla fram í þinginu klukkan hálf ellefu í dag.Sjá einnig: Fast skotið á Sigmund vegna afnáms verðtryggingarinnar „Vinna við afnám verðtryggingar er í gangi í samræmi við þá áætlun sem samþykkt var 2014,“ útskýrði Sigmundur enn á ný. Hann sagði alla verkliði áætlunarinnar frá utan eins, að banna svokölluð Íslandslán sem þýða fátt eitt annað en að lántakendur greiða inn á lánin í sífellu án þess að greiða niður höfuðstólinn.Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra.vísir/gvaVinna gegn afnámi verðtryggingar Þá spurðu þáttastjórnendur: „Hér eru öfl sem vilja ekki sleppa verðtryggingunni. Finnur þú fyrir þessum öflum?“ „Já, já, heldur betur,“ sagði Sigmundur afdráttarlaus. „Tengjast þau Sjálfstæðisflokknum? Eða bönkunum?“ Sigmundur sagðist ekki vilja hengja þetta á ákveðna flokka en þegar gengið var á hann viðurkenndi hann að vissulega væri þarna um að ræða hluta af Sjálfstæðisflokknum. Hann nefndi síðan flokka innan stjórnarandstöðunnar líkt og áður sagði. „Þau vinna í öfuga átt sem gerir okkur vissulega erfiðara fyrir,“ sagði Sigmundur. Hann segir að afnám verðtryggingarinnar væri komin miklu lengra ef ekki væri fyrir „varðhunda þessa kerfis.“Útilokar ekki hlutverkaskipti í ríkisstjórn Sigmundur tók þó fyrir að afnámið væri vonlaust mál heldur væri það eitthvað sem þyrfti að gerast því að hér á landi væri kerfi sem ekki væri búandi við.En er Sigmundur Davíð á leið í fjármálaráðuneytið? „Ef við ætlum að byggja samtöl okkar á hugmyndum Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur kæmumst við ekki mjög langt,“ sagði Sigmundur og kímdi. Sigríður Ingibjörg gaf það sterklega í skyn á þingi í gær að mögulega yrði Sigmundur ekki forsætisráðherra þegar kjörtímabilið væri yfirstaðið og vísaði í orð Bjarna Benediktssonar í Morgunútvarpi Rásar 2 þar sem hann nefndi að mögulega yrðu breytingar á stjórnarsamstarfinu á næstu sex mánuðum. „En við höfum haldið þeim hugmyndum á lofti að það yrðu tilfæringar innan ráðuneytanna. Ræddum það á sínum tíma og höfum haldið möguleikanum opnum,“ viðurkenndi Sigmundur þó án þess að útskýra málið frekar.
Alþingi Tengdar fréttir Verðtrygging áfram en tímalengd breytt Ekki er unnið að afnámi verðtryggingar í fjármálaráðuneytinu, þrátt fyrir orð forsætisráðherra um annað. Lenging lágmarkstíma verðtryggðra lána í tíu ár og stytting úr 40 í 25 ár er til skoðunar. Mögulegt er að frumvarp komi fram í haust. 22. apríl 2015 07:00 „Er Sigmundur Davíð að éta köku enn eina ferðina?“ Forsætisráðherra sagður á hröðum flótta undan öllu tali um afnám verðtryggingar. 13. október 2015 14:18 Niðurfærslan gæti horfið með kjarasamningunum Verðtryggð húsnæðislán eru um 1.200 milljarðar. Verðbólguskot gæti hækkað húsnæðislán um tugi milljarða. Verðbólgan étur upp niðurfærsluna, segir hagfræðingur. Verður að forðast verðbólgu, segir forsætisráðherra. 21. apríl 2015 07:00 Mest lesið Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Neytendur Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Viðskipti innlent Vaxtaverkir í golfi: Kylfingum fjölgar um þúsundir á ári Atvinnulíf SVÓT viðtöl við alla starfsmenn: „Gerðu þetta bara!“ Atvinnulíf Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Viðskipti innlent Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Viðskipti innlent Fleiri fréttir Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Sjá meira
Verðtrygging áfram en tímalengd breytt Ekki er unnið að afnámi verðtryggingar í fjármálaráðuneytinu, þrátt fyrir orð forsætisráðherra um annað. Lenging lágmarkstíma verðtryggðra lána í tíu ár og stytting úr 40 í 25 ár er til skoðunar. Mögulegt er að frumvarp komi fram í haust. 22. apríl 2015 07:00
„Er Sigmundur Davíð að éta köku enn eina ferðina?“ Forsætisráðherra sagður á hröðum flótta undan öllu tali um afnám verðtryggingar. 13. október 2015 14:18
Niðurfærslan gæti horfið með kjarasamningunum Verðtryggð húsnæðislán eru um 1.200 milljarðar. Verðbólguskot gæti hækkað húsnæðislán um tugi milljarða. Verðbólgan étur upp niðurfærsluna, segir hagfræðingur. Verður að forðast verðbólgu, segir forsætisráðherra. 21. apríl 2015 07:00