Jón Guðni undir smásjánni hjá sænsku meisturunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. nóvember 2015 08:00 Jón Guðni hefur verið í herbúðum Sundsvall frá árinu 2012. mynd/facebook-síða sundsvall
Nýkrýndir Svíþjóðarmeistarar Norrköping hafa áhuga á Jóni Guðna Fjólusyni, miðverði Sundsvall, að því er fram kemur í frétt Sportexpressen. Líklegt þykir að Jón Guðni verði fyrsti leikmaðurinn sem Norrköping kaupir fyrir titilvörnina á næsta ári en liðið tryggði sér sænska meistaratitilinn með 0-2 sigri á Malmö í gær. Þetta er fyrsti meistaratitill Norrköping frá árinu 1992. Meðal þeirra leikmanna sem gætu yfirgefið Norrköping á næstunni er varnarmaðurinn David Boo Wiklander en Jón Guðni er hugsaður sem arftaki hans. Haft er eftir Magnúsi Agnari Magnússyni, umboðsmanni Jóns Guðna, að nokkur lið í Skandinavíu séu á höttunum eftir miðverðinum sterka en samningur hans við Sundsvall rennur út um áramótin. Verði félagaskiptin að veruleika verður Jón Guðni annar Íslendingurinn í herbúðum Norrköping ásamt Arnóri Ingva Traustasyni sem átti frábært tímabil í ár. Arnór lagði upp fyrra mark Norrköping í sigrinum á Malmö í gær og skoraði það síðara. Hann gerði alls sjö mörk á tímabilinu og gaf 10 stoðsendingar, flestar allra í sænsku deildinni.Sjá einnig: Sjáðu markið og stoðsendinguna hjá Arnóri Ingva | Myndband Jón Guðni lék 28 af 30 deildarleikjum Sundsvall á tímabilinu og skoraði eitt mark. Sundsvall endaði í 12. sæti deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Sjá meira