Zlatan hefur aldrei skorað á móti Dönum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2015 21:30 Zlatan Ibrahimovic í leik á móti Dönum. Vísir/Getty
Það er bara einn Svíi sem er kominn inn á Evrópumótið í fótbolta í Frakklandi og það er Lars Lagerbäck, þjálfari íslenska landsliðsins. Sænska landsliðið færi tækifæri til að breyta því í komandi umspilsleikjum við Dani. Svíar og Danir mætast tvisvar á næstum dögum, fyrst á Friends Arena í Solna á laugardagskvöldið og svo á Parken í Kaupmannahöfn þremur dögum síðar. Zlatan Ibrahimovic verður í sviðsljósinu í þessum umspilsleikjum Svía og Dana en það er ein staðreynd sem Svíar hafa áhyggjur af í aðdraganda leikjanna. Stærsta knattspyrnustjarna Svía undanfarin áratug á nefnilega enn eftir að finna netmöskvana á móti danska landsliðinu. Zlatan Ibrahimovic hefur sex sinnum spilað á móti Dönum en aldrei náð að skora í þessum leikjum. Zlatan Ibrahimovic er markahæsti sænski landsliðsmaðurinn frá upphafi með 59 mörk í 109 landsleikjum. Hann hefur skorað á móti Noregi, Íslandi, Finnlandi og Færeyjum en aldrei á móti Dönum. Zlatan hefur líka skorað á móti Englandi, Spáni, Frakklandi og Þýskalandi en nú er að sjá hvort hanni nái að brjóta ísinn á móti danska landsliðinu. Zlatan er búinn að skora 8 mörk í 10 leikjum með sænska landsliðinu í undankeppninni og það voru bara Pólverjinn Robert Lewandowski og Þjóðverjinn Thomas Müller sem skoruðu fleiri mörk en hann.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira