Messi og Neymar verða líklega báðir með í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. desember 2015 08:45 Lionel Messi og Neymar. Vísir/Getty
Spænskir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að stórstjörnurnar Lionel Messi og Neymar verði með í úrslitaleiknum í heimsmeistarakeppni félagsliða á sunnudaginn. Barcelona komst í úrslitaleikinn í gær með 3-0 sigri á kínverska liðinu Guangzhou en Messi eða Neymar voru hvorugir með í þeim leik. Neymar sat allan tímann á bekknum en hann er að koma til baka eftir meiðsli. Messi veiktist aftur á móti skyndilega rétt fyrir leik og var fluttur á sjúkrahús. Spænska blaðið Sport segir frá því morgun að það sé bjartsýni innan herbúða Börsunga að Lionel Messi verði búinn að ná sér fyrir úrslitaleikinn þar sem Barcelona mætir einmitt löndum hans í River Plate. Messi hefur ekki æft síðustu daga vegna veikindanna en hann skrifaði inn á fésbókarsíðu sína í gær að hann hefði verið mjög pirraður yfir að missa af undanúrslitaleiknum en vonist jafnfram að vera með á sunnudaginn. Marca skrifar um stöðuna á Neymar og að hann hafi fengið grænt ljós á það að taka þátt í úrslitaleiknum. Barcelona þurfti ekki mikið á þeim Lionel Messi og Neymar að halda í undanúrslitaleiknum því þar skoraði Úrúgvæmaðurinn Luis Suarez öll þrjú mörkin. MSN, Lionel Messi, Luis Suarez og Neymar hafa þegar skorað saman 139 mörk í öllum keppnum á árinu og það væri vel við hæfi að þeir bættu við mörkum og hjálpuðu Barcelona að vinna fimmta titil sinn á árinu 2015.Vísir/Getty
Fótbolti Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Enski boltinn „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ Sport „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Sport Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Enski boltinn Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Enski boltinn Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Körfubolti Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Enski boltinn Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Fótbolti Fleiri fréttir „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Af Skaganum til Lyngby Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjá meira