Standa í vegi fyrir fullkomnun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2015 06:30 Framkonur urðu deildarbikarmeistarar í gær. Vísir/Vilhelm
Árið 2015 var sjötta árið þar sem íslensk kvennahandboltalið gátu unnið fimm titla á einu og sama árinu. Fjögur lið hafa unnið fjóra titla líkt og Gróttustelpur í ár en Seltirninga biðu sömu örlög og hinna þriggja liðanna. Í öll fjögur skiptin eru það einmitt stelpurnar úr Safamýrinni sem hafa komið í veg fyrir fullkomið ár. Fram vann að þessu sinni Gróttu í æsispennandi undanúrslitaleik en hafði áður tekið fimmta titil ársins fyrir framan nefið á fjórföldu meistaraliði. Kvennalið Fram bar ábyrgð á því að Valsliðin á árunum 2010 til 2012 náðu aldrei fullu húsi en Hlíðarendaliðið vann 12 af 15 mögulegum titlum á þessum 36 mánuðum. Framkonur unnu bikarúrslitaleik liðanna fyrstu tvö árin en á síðasta árinu vann Framliðið Valskonur í síðasta leik ársins, úrslitaleik deildabikarsins í Laugardalshöllinni í desember 2012. Stefán Arnarson var þjálfari Valsliðsins sem vann fjóra titla þrjú ár í röð. Nú er Stefán hins vegar þjálfari Framliðsins sem kom í veg fyrir að Gróttukonur gerðu sögulegt ár liðsins enn sögulegra. Gróttuliðið varð bikarmeistari í febrúar, deildarmeistari í mars, Íslandsmeistari í maí og meistari meistaranna í september. Þetta eru fyrstu titlar Gróttu í meistaraflokki kvenna og það hefði vissulega verið magnað að taka fullt hús á slíku ári.Grafík/Fréttablaðið
Olís-deild kvenna Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Tryggði sigurinn með glæsimarki Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Ein karfa skildi liðin að Körfubolti Fleiri fréttir Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Sjá meira