Erlent

Bresk kona dæmd í sex ára fangelsi fyrir að ganga til liðs við ISIS

Atli Ísleifsson skrifar
Tareena Shakil.
Tareena Shakil. Vísir/AFP
Dómstóll í Bretlandi hefur dæmt 26 ára breska konu í sex ára fangelsi fyrir að hafa ferðast til Sýrlands og gengið til liðs við ISIS, hvatt til hryðjuverka á samfélagsmiðlum og verið reiðubúin að gera ungum syni sínum að vígamanni ISIS.

Tareena Shakil sagði fyrir dómi að hún hafi ferðast til helsta vígis ISIS, Raqqa, og gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin. Hún hafi hins vegar flúið aftur til Bretlands þegar hún hafði gert sér grein fyrir að hún hafi gert skelfileg mistök.

Í frétt Guardian um málið kemur fram að dómarinn hafi sett mikinn fyrirvara við frásögn Shakil af framvindu mála. „Þú laugst og laugst bæði fyrir lögreglu og fyrir dómi,“ sagði dómarinn.

Ferðaðist með ungan son sinn

Dómarinn sagði það hafa stuðað sig sérstaklega að hún hafi ferðast með barn sitt til Sýrlands og heimila myndatökur af honum með merki ISIS og hríðskotabyssu.

Shakil fékk fjögurra ára dóm fyrir að hafa gengið til liðs við ISIS og tvö ár til viðbótar fyrir að hafa hvatt til hryðjuverka á samfélagsmiðlum.

Shakil varð róttæk í skoðunum sínum eftir að hafa lesið áróðursefni á netinu og ferðaðist svo um Tyrkland til Sýrlands í október 2014. Hún hafði þá greint vinum og vandamönnum frá því að hún væri á leið á sólarströnd í útlöndum.

Lýsti ótrúlegum flótta

Shakil varði rúmum tveimur mánuðum í glæsihúsi í Raqqa þar sem hún beið þess að ganga að eiga vígamann ISIS. Á meðan á dvöl hennar stóð dreifði hún ISIS-áróðri á samfélagsmiðlum.

Hún yfirgaf svo Sýrland í janúar á síðasta ári og hélt aftur til Bretlands mánuði síðar. Greindi hún lögreglu frá því að henni hafi verið rænt. Í vitnastúkunni sagði hún frá tíma sínum í Raqqa og lýsti ótrúlegum flótta sínum. Dómarinn tók frásögn hennar ekki trúanlega.

Shakil kemur frá Burton-upon-Trent en bjó í Birmingham áður en hún hélt til Sýrlands. Talið er að hún sé ein af um sextíu breskum konum sem hafi yfirgefið landið og gengið til liðs við ISIS í Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×