Tap Blackberry þrefaldast Sæunn Gísladóttir skrifar 24. júní 2016 20:45 Blackberry er með innan við eitt prósent hludeild á snjallsímamarkaði. Vísir/EPA
Tap kanadíska símaframleiðandans Blackberry þrefaldaðist milli ársfjórðunga og nam 670 milljónum dollara, jafnvirði rúmlega 80 milljarða íslenskra króna, á síðasta ársfjórðungi. Í frétt BBC um málið segir að tapið megi rekja til kostnaðar vegna endurskipulagningar og afskrifta. Án einskiptiskostnaðar hagnaðist fyrirtækið um fjórtán milljónir dollara, jafnvirði 1,7 milljarða íslenskra króna. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að tapið á árinu verði þó minna en spár höfðu gert ráð fyrir. John Chen, forstjóri Blackberry, segir að meiri hagkvæmni og mikill vöxtur í hugbúnaði og þjónustu muni draga úr tapi. Tapið mun vera í kringum fimmtán sent á hlut, samanborið við spár um 33 sent á hlut. Blackberry mun færa sig frá snjallsímamarkaðnum þar sem hlutdeild þess nemur tæpu prósenti af heimsmarkaði og í átt að hugbúnaði sem fyrirtæki og ríkisstjórnir styðjast við.
Mest lesið Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Viðskipti innlent Ætluðu að nýta greidd sæti en fengu ekki Neytendur „Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“ Atvinnulíf Skipta um forstjóra hjá Origo Viðskipti innlent Úr útvarpinu í orkumálin Viðskipti innlent Leigja frekar en að kaupa: „Ég þarf ekki að eiga allt“ Atvinnulíf Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fleiri fréttir Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Sjá meira