KSÍ vill að félögin styðji betur við skólasókn yngri leikmanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. nóvember 2016 21:15 KSÍ vill stuðla að góðri samvinnu skólakerfisins og fótboltans í framtíðinni. Vísir/AFP
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt nýja útgáfu af Leyfisreglugerð KSÍ en það gerði hún á fundi stjórnar KSÍ 27. október síðastliðinn. KSÍ fer yfir helstu breytingarnar á leyfisreglugerð KSÍ í frétt á heimasíðu sinni en þar eru félögin sem leika í Pepsi-deild karla og Inkasso-deild karla árið 2017, einnig hvött til þess að kynni sér ákvæði reglugerðarinnar ítarlega. Þátttökuleyfin sem reglugerðin skilgreinir hafa fengið nöfnin A-leyfi og B-leyfi. A-leyfi nær til félaga sem leika í Pepsi-deild karla og/eða Evrópukeppnum félagsliða en B-leyfi nær til félaga sem leika í Inkasso-deild karla. Nýtt ákvæði hefur nú orðið til varðandi leyfishafa sem hafa áunnið sér þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða. Þau lið eru FH, Stjarnan, KR og Valur á næsta ári. Það vekur líka athygli að hér eftir eru auknar kröfur settar á leyfisumsækjendur til að styðja við skólasókn yngri leikmanna. Talað er um þær skyldur í grein 16.3. „Áætlunin verður ennfremur að sýna að leyfisumsækjandi sé skuldbundinn til að styðja markvisst við skólasókn yngri leikmanna, bæði skyldunám og frekari menntun, sbr. eftirfarandi að: a) sérhver yngri leikmaður sem fylgir uppeldisáætluninni geti jafnframt sótt skóla á skólaskylduárum eftir því sem lög gera ráð fyrir, og b) enginn yngri leikmaður sem fylgir uppeldisáætluninni sé hindraður í að halda áfram almennri menntun sinni (akademískri eða starfsmenntun)“. Það er hægt að lesa útgáfu 3.2 af Leyfisreglugerð KSÍ með því að smella hér.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Sjá meira