Innlent

Framsókn og VG á móti innflutningi á hráu kjöti

Heimir Már Pétursson skrifar
Þingmenn Framsóknarflokksins og Vinstri grænna leggjast gegn innflutningi á fersku kjöti og ítreka mikilvægi fæðu- og matvælaöryggis í landinu. Landbúnaðarráðherra tekur undir öryggissjónarmið en segir jafnframt að tryggja þurfi fjölbreytni og hag neytenda varðandi framboð á landbúnaðarvörum.

Í umræðum hér á Alþingi í dag voru þingmenn allra flokka sammála um að gæti þyrfti að matvæla- og fæðuöryggi á Íslandi. Hins vegar mátti greina hug til meiri verndarstefnu hjá þingmönnum Vinstri grænna og Framsóknarflokksins.

Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokki hóf sérstaka umræðu um matvælaframleiðslu- og öryggi á Alþingi í dag og ítrekaði að íslensk kjörframleiðsla væri laus við sýkla- og hormónalyf.

Ég tel að með innflutningi á hráu kjöti værum við að grafa undan matvælaöryggi á Íslandi en langar til að heyra viðhörf hæstbvirts ráðherra varðandi það,“ sagði Silja Dögg.

Silja Dögg Gunnarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins.vísir/pjetur
Framsóknarmenn leggðu áherslu á að mótuð verði stefna varðandi ógnir við fæðu og matvælaöryggi á Íslandi. Nýlega var gerður samningur um aukinn innflutning á hráu kjöti frá Evrópusambandinu og héraðsdómur hefur verið kveðinn upp um að bann við slíkum innflutningi samræmist ekki EES samningnum.

En um 15 ár eru hins vegar liðin frá því frelsi var aukið í innflutningi á grænmeti.

„Ég ætla nú ekki að fara nánar í það hvað við erum að flytja allt of mikið inn af grænmeti og framleiða miklu minna en við gætum mögulega gert,“ sagði Silja Dögg.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir landbúnaðarráðherra sagði mikilvægt að innleiða vottunarkerfi og upprunamerkingar á landúnaðarvörum, en sérstaða Íslands fælist í hreinni vöru. Skyma þyrfti fyrir fjölónæmum bakteríum. Hún hefði að sjálfsögðu áfrýjað dómi héraðsdóms um innflutning á hráu kjöti til Hæstaréttar til að fá afgerandi niðurstöðu í málið.

Þorgerður Katrín sagði aftur á móti tollkvótar á innfluttum landbúnaðarvörum muni aukast næsta sumar samkvæmt nýlegum samningi við Evrópusambandið en samningurinn felur líka í sér stóraukinn útflutning á íslenskum landbúnaðarvörum.

„Í þeirri vinnu, við endurskoðun á regluverkinu, verða hagsmunir neytenda hafðir að leiðarljósi. Hvað varðar verð og vöruúrval. Ég geri mér hins vegar fyllilega grein fyrir að þetta er mjög snúið mál. Það er ekki auðleyst en markmiðin eru skýr. Að koma til móts við hag neytenda,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á Alþingi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×