Erlent

Útilokaðir frá fundi Kushners

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Jared Kushner er í lykilstöðu í ríkisstjórn Trump.
Jared Kushner er í lykilstöðu í ríkisstjórn Trump. Vísir/EPA
Blaðamönnum var meinaður aðgangur að viðburði Kushner-fjölskyldunnar í Shanghai í Kína í gær. Þar var kínverskum athafnamönnum kynnt boð fjölskyldunnar um að greiða fyrir dvalarleyfi í Bandaríkjunum gegn fjárfestingu í fasteignauppbyggingu. Reuters greindi frá.

Þekktasti meðlimur fjölskyldunnar er án nokkurs vafa Jared Kushner, ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta og eiginmaður Ivönku, dóttur Donalds.

Byggja á tvo lúxusíbúðaturna í New Jersey og stendur Kushner Companies fyrir verkefninu.

Þar til nýlega stýrði Jared Kushner umræddu fyrirtæki sem reynir nú að afla 150 milljóna Bandaríkjadala frá kínverskum fjárfestum. Þeim er í staðinn lofað fyrirgreiðslu við að fá dvalarleyfi í Bandaríkjunum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×