Sagosen bjargaði Álaborg í fyrsta úrslitaleiknum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. maí 2017 16:06 Aron Kristjánsson þjálfar lið Álaborgar. mynd/álaborg
Fyrsti leikur Íslendingaliðanna Álaborgar og Skjern í baráttunni um danska meistaratitilinn í handbolta var æsispennandi. Leiknum lyktaði með jafntefli, 26-26. Það var Norðmaðurinn Sander Sagosen sem tryggði Álaborg jafntefli með marki nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Skjern var næstum því búið að vinna þó svo liðið hefði aðeins verið yfir í leiknum í 62 sekúndur. Strákarnir hans Arons byrjuðu leikinn mun betur og leiddu með þriggja marka mun, 14-11, í hálfleik. Skjern kom til baka í síðari hálfleik og þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum náði liðið að jafna, 17-17. Liðin héldust í hendur í kjölfarið en Skjern tókst þó ekki að komast yfir. Ekki fyrr en rúm mínúta var eftir. Þá kom Lasse Mikkelsen Skjern yfir, 25-26. Það var í fyrsta skiptið sem Skjern komst yfir í öllum leikjum. Arnór Atlason, sem hafði lítið spilað, tók skot fyrir Álaborg er 36 sekúndur voru eftir en það var varið. Hans fyrsta og eina skot í leiknum. Skjern þurfti bara að halda boltanum í 30 sekúndur en liðið missti boltann er 15 sekúndur voru eftir. Það nýtti Álaborg sér og Norðmaðurinn Sander Sagosen jafnaði leikinn, 26-26, er sjö sekúndur voru eftir. Ekki er framlengt í úrslitunum fyrr en þess þarf og því er enn jafnt á milli liðanna eftir fyrsta leikinn. Annar leikur liðanna fer fram í Skjern á sunnudag. Sagosen var markahæstur í liði Álaborgar með átta mörk eins og Patrick Wiesmach. Janus Daði Smárason var sterkur með fjögur mörk og fjórar stoðsendingar fyrir liðið. Arnór og Stefán Rafn Sigurmansson komust ekki á blað. Tandri Már Konráðsson var í liði Skjern en fékk ekki að spreyta sig í sóknarleiknum.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira