Trump sagður hafa áhyggjur af áhrifum Brexit Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. maí 2017 15:06 Donald Trump Bandaríkjaforseti. vísir/getty
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er sagður hafa lýst yfir áhyggjum sínum af útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og áhrifum þess fyrir bandarísk störf á fundi sínum með forsvarsmönnum Evrópusambandsins í Brussel í dag. Forsetinn er þar staddur í tilefni af leiðtogafundi NATO. Guardian greinir frá. Trump átti 45 mínútna fund með Donald Tusk og Jean Claude Juncker, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins og forseta framkvæmdastjórnar sambandsins. Ef satt reynist eru ummæli Trump algjör viðsnúningur en forsetinn studdi Brexit með ráðum og dáðum á sínum tíma. Þá tók forsetinn meðal annars við Nigel Farage í heimsókn, einum heitasta stuðningsmanni Brexit og fyrrverandi formanni UKIP og studdi Farage hann í kosningabaráttunni Forsetinn er ekki þekktur fyrir staðfestu sína er kemur að utanríkismálum en eins og alkunna er ákvað hann að skipa Bandaríkjaher að skjóta eldflaugum á herlið Bashar al-Assad Sýrlandsforseta eftir efnavopnaárás hersins á almenna borgara en áður hafði hann talað gegn aðgerðum gegn forsetanum. Margir stuðningsmenn forsetans urðu fyrir vonbrigðum með hann vegna þeirrar ákvörðunar og þar á meðal var Nigel Farage. Forsvarsmenn Evrópusambandsins róa nú að því öllum árum að hefja viðræður við Bandaríkin að gerð fríverslunarsamnings og er jafnvel talið að sambandið geti orðið fyrr til að gera slíkan samning við Bandaríkin heldur en Bretland. Samningaviðræður Evrópusambandsins og Bretlands vegna Brexit hefjast í næsta mánuði.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Sjá meira