Frambjóðandi repúblikana réðst á blaðamann Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 25. maí 2017 09:42 Greg Gianforte, í töluvert betra skapi en þegar hann réðst á blaðamanninn. Vísir/Getty
Frambjóðandi repúblikana til sætis í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir hönd Montana fylkis, Greg Gianforte, réðst á Ben Jacobs, blaðamann Guardian og skellti honum í gólfið með þeim afleiðingum að gleraugun hans brotnuðu. Þingmaðurinn hefur verið kærður fyrir líkamsárás. Atvikið náðist á hljóðupptöku sem heyra má hér að neðan. Frambjóðandinn var í viðtali við blaðamanninn og var Jacobs að spyrja hann spurninga út í heilbrigðisfrumvarp Donald Trump, Bandaríkjaforseta, þegar frambjóðandinn virðist hafa þrotið þolinmæðin og skellti honum í gólfið. Jacobs tilkynnti atvikið til lögreglu. „Hann skellti mér bara í jörðina,“ segir Jacobs en flytja þurfti blaðamanninn á sjúkrahús eftir árásina. „Ég held hann hafi svo gólað á mig einu sinni eða tvisvar....ég held hann hafi líka kýlt mig. Þetta er það furðulegasta sem ég hef lent í á starfsferlinum.“ Í tilkynningu frá kosningaskrifstofu Gianforte segir að blaðamaðurinn beri sjálfur ábyrgð á því sem gerðist þar sem hann hafi „komið sér inn á kosningaskrifstofu frambjóðandans án leyfis og þrýst upptökutæki í andlitið á frambjóðandanum.“ Blaðamaðurinn hafi neitað að yfirgefa svæðið. Jacobs hefur þvertekið fyrir nokkuð slíkt og segir hann að honum hafi aldrei verið gert að yfirgefa svæðið. Hljóðupptakan sanni það.
Mest lesið Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Ætlar ekki að láta kúga sig Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Innlent Fleiri fréttir Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Sjá meira