Fanndís fékk óvænt símtal úr ókunnu númeri í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2017 15:00 Fanndís Friðriksdóttir. Vísir/Samett/KSI og Vihelm
Fanndís Friðriksdóttir og stelpurnar í íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta hafa verið mjög áberandi á Íslandi síðustu vikurnar og það vita nánast allir Íslendingar að þær eru á leiðinni á EM í Hollandi. Stelpurnar taka oftast mjög vel í það að koma fram og auglýsa sig og liðið en um leið gera þær sér vel grein fyrir því að þær eru líka að búa til sterkar fyrirmyndir fyrir framtíðar fótboltakonur landsins. Fanndís og félagar lenda samt oft í aðstæðum sem þær eru ekki vanar að vera í. Þær leysa vandmálið þó jafnan með bros á vör og svo var einnig um óvænt símtal sem Fanndís fékk í gær. Fanndís sagði í dag blaðamanni sögu frá því sem gerðist eftir áritun kvennaliðsins á Laugardalsvellinum í gær. Aðdáendur íslenska liðsins áttu þá möguleika að fá áritun frá öllum leikmönnum liðsins. „Við vorum að gefa eiginhandaáritanir í gær. Svo fékk ég símhringingu um kvöldmatarleitið úr ókunnu númeri. Þá voru það litlar stelpur sem misstu af mér í gær og langaði svo svakalega mikið að ég myndi skrifa á skóna þeirra,“ sagði Fanndís. „Þær redduðu sér, fóru inn á já.is, fundu númerið mitt, hringdu og báðu mig um að koma og skrifa á skóinn,“ sagði Fanndís. Hún ætlar að verða við þeirri ósk. „Ég geri það í dag,“ sagði Fanndís brosandi og það má búast við að stelpurnar brosi allan hringinn eftir að hafa fengið heimsókn frá landsliðskonunni.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Breiðablik - Víkingur | Heimakonur skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska „Dramatískasta viðureignin í alþjóðafótboltanum“ Bauð miðalausum stuðningsmanni á undanúrslit heimsmeistaramótsins Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Spánverjar jöfnuðu heimsmet og geta slegið það í úrslitaleiknum „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Maður dagsins á HM: Byrjaði hjá Barcelona en nú kominn til Real Madrid Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Sjá meira