Þúsundir Breta fengu lifrarbólgu C og HIV-veiruna með sýktu blóði við blóðgjöf Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. júlí 2017 16:40 Rannsóknin mun beinast að 8. og 9. áratugnum þar sem flestar blóðgjafir með sýktu blóði fóru fram þá. vísir/getty
Ráðherrar í bresku ríkisstjórninni hafa fyrirskipað rannsókn á því hvernig þúsundir einstaklinga smituðust af lifrarbólgu C og HIV-veirunni eftir blóðgjöf en talið er að allt að 2.400 manns hafi dáið af völdum sjúkdómanna eftir að hafa fengið sýkt blóð við blóðgjöf. Bæði þingmenn og þrýstihópar hafa barist fyrir því í fjölda ára að fram fari rannsókn á málinu en rannsóknin mun beinast að 8. og 9. áratugnum þar sem flestar blóðgjafir með sýktu blóði fóru fram þá. Ekki hefur verið ákveðið hverjir munu stýra rannsókninni eða með hvaða hætti hún fer fram en þrýstingur á að rannsókn fari fram hefur aukist undanfarið, ekki síst vegna baráttu Diönu Johnson, þingmanns Verkamannaflokksins, og Andy Burnham, fyrrverandi þingmanns Verkamannaflokksins og núverandi borgarstjóra í Manchester.Sannanir fyrir því að hylmt hafi verið yfir glæpi Í síðustu ræðu sinni á þingi í apríl síðastliðnum sagði Burnham að bæði fjölskyldur og brotaþolar í málinu hefðu haft samband við sig þar sem þau töldu að sjúkraskýrslur hefðu verið falsaðar til að fela skandalinn. Þannig væru sannanir fyrir því að hylmt hafi verið yfir glæpi í stórum stíl í tengslum við sýkta blóðið. Margir þeirra sem fengu sýkt blóð við blóðgjöf þjáðust af sjúkdómnum dreyrasýki en það er meðfæddur blóðsjúkdómur sem leiðir til blæðingartilhneigingar. Þeir sem þjást af sjúkdómnum þurfa því reglulega á blóðgjöf að halda. Á þeim tíma sem rannsóknin fluttu Bretar inn blóð frá Bandaríkjunum þar sem blóðgjöfum var greitt fyrir að gefa blóð en slíkar greiðslur juku líkurnar á því að ónothæft blóð væri gefið. Þá voru fangar blóðgjafar bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum en þeir voru í meiri hættu en aðrir fangar á því að nota eiturlyf. Samkvæmt þrýstihópnum Tainted Blood sem barist hefur fyrir málinu í áratugi er talið að 4.800 manns hafi smitast af lifrarbólgu C við blóðgjöf. Af þeim smituðust 1.200 manns einnig af HIV-veirunni sem veldur alnæmi og hefur helmingur þeirra sem smituðust, 2.400, dáið.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira