KR fær danskan framherja 11. júlí 2017 08:51 Kennie Chopart fær fjórða danska samherjann. vísir/eyþór
KR er búið að bæta við sig dönskum sóknarmanni að nafni André Bjerregaard sem kemur til liðsins frá AC Horsens í Danmörku. Danska félagið tilkynnir á vef sínum að það er búið að selja framherjann til Íslands. Bjerregaard hefur leikið með Horsens undanfarin sjö ár en á síðustu leiktíð spilaði hann 36 leiki, skoraði fimm mörk og átti átta stoðsendingar er liðið hélt sér uppi í gegnum fallumspil. Hann er 25 ára gamall og hefur verið samherji Kjartans Henry Finnbogasonar hjá Horsens síðan íslenski landsliðsmaðurinn gekk í raðir danska félagið. „Við höfum verið mjög ánægðir með að hafa André í okkar röðum en erum ánægðir einnig að hann fái tækifæri til að hefja nýjan kafla á Íslandi,“ segir Bo Henriksen, þjálfari Horsens, sem spilaði hér á landi með Fram, Val og ÍBV. KR er í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar með ellefu stig en á tvo leiki eftir í fyrri umferðinni. Liðið er aðeins búið að skora þrettán mörk en vonandi fyrir það getur André hjálpað til við það. KR ferðast til Ísrael í dag þar sem það mætir Maccabi Tel Aviv í Evrópudeildinni á fimmtudaginn en næst mætir það Stjörnunni á útivelli í Pepsi-deildinni á sunnudaginn þar sem André Bjerregaard verður löglegur.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vilja 370 milljarða í skaðabætur vegna dauða eiganda Leicester Enski boltinn Dagskráin í dag: Arsenal mætir Man. Utd og úrslitakeppni NFL-heldur áfram Sport „Hann hefur náð að fela hann varnarlega alveg fáránlega vel“ Körfubolti Slot hrósaði Accrington og ungstirninu Enski boltinn Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Íslenski boltinn Sá elsti til að vinna á ATP-mótaröðinni og sló met Federer Sport Upprúllun hjá City gegn litla nágrannaliðinu Enski boltinn Pep staðfestir að Walker vilji fara í janúar Enski boltinn Milan áfram í miðjumoði eftir jafntefli Fótbolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Handbolti Fleiri fréttir Fengu Gumma Ben til að lýsa og stjörnur til að spila í styrktarleik fyrir vin sinn Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Sjá meira