Aukinn þungi í rannsókn á meintum fjársvikum Jane Sanders Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. júlí 2017 23:30 Jane Sanders, eiginkona Bernie Sanders, sætir nú rannsókn vegna gruns um að hún hafi svikið út margar milljónir dollara. vísir/getty
Bandaríska alríkislögreglan, FBI, hefur að undanförnu sett aukinn kraft í rannsókn sína á meintum fjársvikum Jane Sanders, eiginkonu öldungadeildarþingmannsins Bernie Sanders, sem bauð sig fram gegn Hillary Clinton til að verða forsetaframbjóðandi Demókrata. Sanders er grunuð um að hafa veitt banka villandi upplýsingar og gefið fölsk fyrirheit til að fá lán upp á tíu milljónir dollara lán árið 2010. Lánið var vegna kaupa á landareign fyrir lítinn háskóla í Burlington í Vermont en Sanders var forseti skólans. Kaupin á landareigninni komu skólanum í mikil fjárhagsleg vandræði sem urðu til þess að honum var lokað í fyrra. Að því er fram kemur á vef Washington Post hafa saksóknarar hjá FBI lagt hald á gríðarlegt magn gagna í tengslum við rannsóknina og krafist þess að embættismaður gefi skýrslu fyrir kviðdómi.Óttast að Trump muni nota rannsóknina gegn þeim Þá hafa lögfræðingar Sanders-hjónanna rætt við ýmsa einstaklinga sem talið er að FBI gæti kallað til vitnis til þess að reyna að komast að því hvað þeir muni hugsanlega segja yfirvöldum. Samkvæmt frétt Washington Post er rannsókn FBI bundin við Jane Sanders og meint fjársvik hennar og tengist ekki Bernie Sanders sjálfum. Hins vegar gæti rannsóknin leitt til pólitískrar ábyrgðar hans en Bernie Sanders er gríðarlega vinsæll stjórnmálamaður hjá vinstrisinnuðum Bandaríkjamönnum. Talsmaður Sanders-hjónanna, Jeff Weaver, neitaði sakargiftum í síðustu viku. Hann sagði að Sanders-hjónin hefðu ráðið sér lögmenn því þau óttast að rannsóknin verði mögulega notuð til þess að koma höggi á þau ef Bernie Sanders sækist aftur eftir embætti Bandaríkjaforseta árið 2020. „Á meðan Obama var forseti þá held ég að enginn hafi talið þörf á að fá sér lögfræðing út af svona tilhæfulausum ásökunum. En staðan er öðruvísi með Donald Trump og Jeff Sessions við stjórnvölinn,“ sagði Weaver.
Tengdar fréttir Eiginkona Bernie Sanders til rannsóknar vegna mögulegra fjársvika Rannsakendur FBI kanna nú hvort að Jane Sanders, eiginkona Bernie, hafi svikið út bankalán með fölskum fyrirheitum fyrir háskóla sem hún stjórnaði árið 2010. 27. júní 2017 14:18 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira
Eiginkona Bernie Sanders til rannsóknar vegna mögulegra fjársvika Rannsakendur FBI kanna nú hvort að Jane Sanders, eiginkona Bernie, hafi svikið út bankalán með fölskum fyrirheitum fyrir háskóla sem hún stjórnaði árið 2010. 27. júní 2017 14:18